Öskudagurinn er í dag og börnin njóta – sjáðu myndir
Öskudagur, upphafsdagur lönguföstu, er í dag og börnin elska að hlaupa á milli verslana, syngja og fá nammi að launum.
Öskudagurinn í hjarta Hafnarfjarðar
Vinsamlegast ekki syngja litalagið! stendur á bleikum post-it miða á Bókasafninu og börnin verða að hugsa annað lag. Já, þetta langvinsælasta lag víkur fyrir öðru.
„En hvað eigum við þá að syngja?“ spyrja krakkarnir og horfa á hvert annað. Sælgætisstjórinn stingur upp á lagi og fær að heyra uppáhaldið sitt – Í síðasta skipti.
Krakkarnir þau hlaupa nú milli verslana og veiða upp sælgætið á þessum frábæra Öskudegi. Veðrið er mjög gott, stemningin enn betri og þau njóta þess að vera til.
Eins og segir á Vísindavef Háskólans er Öskudagur upphafsdagur lönguföstu, miðvikudagurinn í 7. viku fyrir páska. Ekki er hægt að ganga að dagsetningunni vísri. Hún getur sveiflast á milli 4. febrúar til 10. mars. En í ár er Öskudagur 18. febrúar.
Hreinsunardagurinn mikli
En af hverju heitir dagurinn Öskudagur? „Öskudagur hefur lengi verið mikilvægur í katólska kirkjuárinu og nafn hans er dregið af því að þá er sums staðar ösku dreift yfir höfuð kirkjugesta, og til þess notaður jafnvel sérstakur vöndur. Annars staðar þekkist að ösku sé smurt á enni kirkjugesta.
Eins og lesa má á mörgum stöðum í Biblíunni, táknar aska hið forgengilega og óverðuga en að auki hefur hún verið talin búa yfir heilnæmum og hreinsandi krafti. Langafasta er hinn kirkjulegi tími iðrunar og dreifing ösku yfir söfnuðinn minnir hann á forgengileikann og hreinsar hann um leið af syndum,“ segir á vef Vísindavefjarins.
Njótum myndanna og gleðinnar með börnunum.