Óveður í aðsigi – fylgjumst vel með!

Fréttir

Aftur er óveður í aðsigi og því er mikilvægt að fólk fylgist vel með veðri, færð og tilkynningum frá almannavörnum. Appelsínugul viðvörun vegna veðurs gildir síðdegis í dag frá kl. 16-19, en þá tekur við rauð viðvörun, sem gildir frá kl. 19-22.30. Fólk er hvatt til að vera ekki á ferðinni að meðan rauða viðvörunin er í gildi. Spáð er suðaustan hvassviðri eða stormi síðdegis og aftur seint í kvöld og fram yfir miðnætti, en suðaustan roki frá kl. 19-22.

Förum varlega og verum ekki á ferðinni að nauðsynjalausu

Aftur er óveður í aðsigi og því er mikilvægt að fólk fylgist vel með veðri, færð og tilkynningum frá almannavörnum. Appelsínugul viðvörun vegna veðurs gildir síðdegis í dag frá kl. 16-19, en þá tekur við rauð viðvörun, sem gildir frá kl. 19-22.30. Fólk er hvatt til að vera ekki á ferðinni að meðan rauða viðvörunin er í gildi. Spáð er suðaustan hvassviðri eða stormi síðdegis og aftur seint í kvöld og fram yfir miðnætti, en suðaustan roki frá kl. 19-22.

Nýjustu upplýsingar er ávallt að finna á vef Veðurstofunnar 

Raud21Feb2022

Leiðbeiningar um röskun á skólastarfi 

Frá klukkan 22.30 til kl. 1 í nótt verður appelsínugul viðvörun í gangi. Frá kl. frá kl. 6 -13 á morgun er gul og appelsínugul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu, en þar á milli er spáð suðvestan stormi með úrkomu á höfuðborgarsvæðinu fram yfir hádegi. Mikilvægt er fyrir foreldra að kynna sér leiðbeiningar um röskun á skólastarfi á appelsínugulu í fyrramálið. 

Leiðbeiningar um röskun á skólastarfi

Útlit er fyrir truflanir á samgöngum

Búast má við talsverðri rigningu eða snjókomu á meðan veðrið gengur yfir, snjórinn getur valdið ófærð á götum. Rigning og leysing getur valdið vatnselg og því þarf að reyna að tryggja að vatn komist í fráveitukerfi og til að forðast vatnstjón. Íbúar eru minntir á að huga að ræsum/niðurföllum við hús sín. Útlit er fyrir truflanir á samgöngum en upplýsingar um lokanir á helstu vegum til og frá höfuðborgarsvæðinu er að finna á heimasíðu Vegagerðarinnar. Líkur eru á foktjóni og er fólki ráðlagt að ganga frá lausum munum. Verktökum er bent á að ganga vel frá framkvæmdasvæðum.

Ábendingagátt