Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Kári vindflokkari fyrir plast verður úr notkun í maí vegna uppsetningar á nýrri flokkunarlínu í móttökustöð. Í byrjun júní 2020 tekur SORPA nýja gas- og jarðgerðarstöð í notkun í Álfsnesi (GAJA) en þar verður lífrænum hluta heimilisúrgangs umbreytt í jarðvegsbæti og metan.
Meðfylgjandi tilkynningu er að finna á vef Sorpu
Kári vindflokkari fyrir plast verður úr notkun í maí vegna uppsetningar á nýrri flokkunarlínu í móttökustöð.
Í byrjun júní 2020 tekur SORPA nýja gas- og jarðgerðarstöð í notkun í Álfsnesi (GAJA) en þar verður lífrænum hluta heimilisúrgangs umbreytt í jarðvegsbæti og metan. Til að mæta þörfum vinnslunnar í GAJA og til að auka endurnýtingu heimilisúrgangs er nú unnið að uppsetningu vélrænnar flokkunarlínu í móttöku- og flokkunarstöðinni í Gufunesi.
Nýja vinnslulínan mun innihalda sex málmskiljur, sigti og annan búnað til að aðskilja lífrænan hluta heimilisúrgangsins frá ólífrænum efnum, s.s. plasti og öðru sem þar kann að leynast. Einnig verður þar nýr vindflokkari sem mun aðskilja létt efni, s.s. plast, pappír og textíl frá timbri, gleri og öðrum eðlisþyngri efnum.
Breytingar í móttökustöðinni fela m.a. í sér flutning á Kára, vindflokkara fyrir plast í poka, og verður hann óvirkur á meðan á framkvæmdum stendur. Kári er búnaður sem notaður er til að flokka plast í pokum frá heimilisúrgangi í Hafnarfirði, Garðabæ, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi. Gert er ráð fyrir að ljúka uppsetningu vinnslulínunnar í kringum 20. maí og taka þá við prófanir á búnaði. Gera má ráð fyrir að vinnslulínan, að Kára meðtöldum, verði komin í fulla virkni fyrri hluta júní.
Íbúar í þeim sveitarfélögum sem skila plasti í pokum með heimilissorpi eru því áfram beðnir um að skila flokkuðu plasti á grenndarstöðvar eða á endurvinnslustöðvar. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda en hlökkum jafnframt til að taka í notkun nýjar og enn betri vinnsluaðferðir sem munu auka nýtingu heimilisúrgangs verulega.
Yfir fimmtíu þúsund hafa nú stigið inn á Thorsplan og notið Jólaþorpsins með okkur. Nú hefst sjötta og síðasta helgi…
Félagsskapur Karla í skúrum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…