Pokalaus Hafnarfjörður
Þann 18. apríl síðast liðinn hófst formlega samstarfsverkefnið „ pokalaus Hafnarfjörður“ milli Hrafnistu og leikskólans Norðurbergs
Þann 18. apríl síðast liðinn hófst formlega samstarfsverkefnið „
pokalaus Hafnarfjörður“ milli Hrafnistu og leikskólans Norðurbergs. Samstarfið
felur í sér að heimilisfólkið, þjónustunotendur og starfsfólk á Hrafnistu saumar
taupoka undir óhrein og blaut föt barnanna. Leikskólinn safnar saman efni
(gamlar gardínur, gamlir dúkar, gömul sængurver og fleira) og kemur því á vinnustofu
iðjuþjálfunarinnar.
Taupokarnir verða eign leikskólans. Í upphafi leikskólaársins þá er pokunum
dreift í fatahólf barnanna og í lok skólaársins þá innheimtir leikskólinn
pokana og eiga foreldrar að skila þeim hreinum og stroknum til næstu barna. Við
stefnum að því að ljúka verkefninu í desember 2018.
Tilgangur verkefnisins er að gera leikskólann eins
plastpokalausan og hægt er. Þetta er
framlag okkar, Norðurbergs og Hrafnistu, til að framfylgja umhverfis- og
auðlindastefnu Hafnarfjarðar.