Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Pólsk rokktónlist, grafík, upplestur og keramík fá sitt pláss á Bókasafni Hafnarfjarðar á laugardag. Pólski dagur bókasafns verður haldinn 15. nóvember í ár frá kl. 12-16. Þúsund manns komu í fyrra.
Pólsk rokktónlist, grafík, upplestur og keramík fá sitt pláss á Bókasafni Hafnarfjarðar á laugardag. Pólski dagur bókasafns verður haldinn 15. nóvember í ár frá kl. 12-16. Þúsund manns komu í fyrra. Sylwia Zajkowska, stjórnandi pólska starfsins á bókasafninu, segir ómögulegt að segja til um hversu mörg koma í ár.
„Við höfum meðal annars hengt upp plaköt í pólskum verslunum á höfuðborgarsvæðinu og sett inn á íbúasíður. Ég vona að sem flest komi,“ segir hún.
Dagskráin þétt og þemað í ár blóm en var hin ýmsu dýr í fyrra. „Já, við erum með falleg blóm í Póllandi, sum svipuð og hér, önnur ekki,“ segir Sylwia og að þemað brjóti ísinn, gefi færi á samtalinu og kveiki áhuga. „Kannski geta Íslendingar kynnst okkur betur þegar við höldum Pólska daginn.“ Hún hefur búið til ratleik sem börnin getur tekið þátt í bæði á pólsku og íslensku á bókasafninu.
Pólski dagurinn hefur náð langt út fyrir Hafnarfjörð. Fólk kemur alls staðar að af landinu.
„Mér finnst mikilvægt að við getum verið saman. Við getum talað pólsku saman. Ég skrifaði bók í háskóla svo Íslendingar geti lært pólsku. Mér finnst gaman að heyra Íslendinga tala pólsku,“ segir hún. Dagurinn sé sniðinn að því að hitta sitt fólk og tala pólsku.
„Það er mikilvægt að við getum verið saman. Stundum er erfitt að búa erlendis, en þegar við sjáum fyrirmyndir í öðrum og kynnumst því hvað fólk er að gera, þá gefur það mikið. Á Pólska deginum getum við sýnt starfið okkar. Við vinnum ekki bara hér á Íslandi. Við lifum fjölbreyttu lífi her á landi og eigum áhugamál,“ segir Sylwia sem er ekki aðeins bókavöður á Bókasafni Hafnarfjarðar heldur einnig leikkona.
„Hér á Íslandi má skapa sér fjölbreytt líf. Ef þú til dæmis málar, þá er mögulegt að sýna vekið hér á landi. Þú þarf ekki að vera í Póllandi,“ segir hún.
Sjálf gerði Sylwia listaverk fyrir daginn. Risablóm úr kreppappír sem hún stendur hjá á myndinni. „Já, það tók sinn tíma. En þetta er eitt af því sem ég elska að gera.“
Pólski dagurinn teygir sig í Hafnarborg á laugardag. Milli kl. 13-15 býður Hafnarborg pólskumælandi fjölskyldum að taka þátt í þæfingarsmiðju, undir leiðsögn listakonunnar Agötu Mickiewicz, þar sem þátttakendur munu búa til lítil veggteppi úr ull, innblásin af pólskum þjóðlegum mynstrum. Tungumál smiðjunnar eru pólska, íslenska og enska.
Kynnumst saman hinni heillandi kúnst að þæfa! Í smiðjunni munu þátttakendur fá að spreyta sig á hefðbundinni aðferð við votþæfingu – þar sem notað er heitt vatn, sápa og núningur til að flétta saman og þétta ullarþræði í mjúkt og litríkt efni. Hvert barn fær tækifæri til að hanna og skapa sitt eigið veggteppi, innblásið af pólskri þjóðlist og menningu.
Á mínu máli er viðburðaröð sem miðar að því að auka aðgengi fólks með margs konar bakgrunn að Hafnarborg með því að bjóða gesti velkomna á ólíkum tungumálum. Verkefnið er styrkt af Safnasjóði.
Smiðjan fer fram á jarðhæð safnsins og er opin öllum aldurshópum. Engrar fyrri kunnáttu í listsköpun er krafist, en börn skulu vera í fylgd með foreldri eða forráðamanni. Eins og alltaf er þátttaka í smiðjum sem og aðgangur að sýningum safnsins gestum að kostnaðarlausu.
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…
Fjórða helgin okkar í Jólaþorpinu verður yndisleg. Veðrið mun leika við gesti en fyrst og fremst munu allar þær gersemar…
Börn fá frístundastyrk frá þriggja ára aldri. 10,6 milljarðar verða settir í fjárfestingar. Einnig verður sett fjármagn í uppbyggingu nýs…
Hjörtu okkar Hafnarfjarðar skarta fjólubláum lit í dag á alþjóðadegi fatlaðs fólks. Dagurinn er 3. desember ár hvert til að…
Menntastefna Hafnarfjarðarbæjar var kynnt á starfsdegi astarfsfólks frístundar-, grunnskóla- og leikskóla Hafnarfjarðarbæjar þann 14. nóvember. Þátttakendur gátu valið um ólíka…
Ný stefna um móttöku skemmtiferðaskipa í Hafnarfirði hefur verið samþykkt af bæjarráði. Stefnan gildir til 2035.
Um 30 útskrifuðust úr Leiðtogaskóla Hafnarfjarðarbæjar á dögunum. Nú hafa 90 stjórnendur bæjarins útskrifast. Kennslan eflir bæjarbraginn.
Mæðgurnar Lára Alda Alexandersdóttir og Silja Þórðardóttir lærðu saman að verða gusumeistarar. Þær nota kraftana í Herjólfsgufunni við Langeyrarmalir.
„Ég finn að Hafnfirðingar eru stoltir af Jólabænum og Jólaþorpinu á Thorsplani,“ segir Sunna Magnúsdóttir, verkefnastjóri Jólaþorpsins sem orðið er…