Ráðleggingar vegna ferðalaga til Norður-Ítalíu og Tenerife

Fréttir

Staðfestum tilfellum COVID-19 kórónaveirunnar utan Kína hefur fjölgað undanfarna daga. Þar á meðal í Evrópu þar sem tilfelli á Norður-Ítalíu nálgast á þriðja hundrað. Grunur leikur á að eitt tilfelli hafi komið upp á Tenerife á Spáni en endanleg staðfesting á því liggur ekki fyrir. Sóttvarnalæknir varar við ástæðulausum ferðalögum til fjögurra héraða á Norður-Ítalíu en engar ferðaviðvaranir eru í gildi á Tenerife.

Staðfestum tilfellum COVID-19
kórónaveirunnar utan Kína hefur fjölgað undanfarna daga. Þar á meðal í Evrópu
þar sem tilfelli á Norður-Ítalíu nálgast á þriðja hundrað. Grunur leikur á að
eitt tilfelli hafi komið upp á Tenerife á Spáni en endanleg staðfesting á því
liggur ekki fyrir. Sóttvarnalæknir varar við ástæðulausum ferðalögum til fjögurra héraða á
Norður-Ítalíu en engar ferðaviðvaranir eru í gildi á Tenerife. Sjá ráðleggingar til
ferðamanna.

Norðurhéruð Ítalíu sem og Tenerife eru vinsælir áfangastaðir Íslendinga. Hér
fyrir neðan er að finna ráðleggingar sóttvarnalæknis fyrir þessi tvö svæði.
Hafa ber í huga að staða mála í Evrópu með tilliti til COVID-19 breytist nú
hratt og því gætu ráðleggingar sóttvarnalæknis tekið breytingum með stuttum
fyrirvara.

Sjá lista yfir skilgreind
áhættusvæði

Norður-Ítalía
Sóttvarnalæknir ráðleggur gegn ónauðsynlegum ferðum til Lombardíu, Venetó,
Emilía Rómanja og Píemonte á Ítalíu. Þeim sem dvalið hafa á þessum svæðum á
undanförnum dögum og eru komnir til landsins eða eru að koma til landsins er
ráðlagt að halda sig heima í 14 daga í varúðarskyni.  

Þetta
á ekki við um þá einstaklinga sem ferðast frá Ítalíu til Íslands í gegnum
alþjóðaflugvelli á Norður-Ítalíu en hafa dvalið á öðrum svæðum en þeim sem
nefnd voru hér fyrir ofan. Brýnt er að þeir sem annað hvort eru á svæðinu hugi
vel að persónulegu hreinlæti og fylgi fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda. Sem stendur ná ráðleggingar gegn ónauðsynlegum ferðum til svæðanna ekki til
skíðasvæða í Norður-Ítalíu en þau eru utan ofannefndra áhættusvæða og engin tilfelli
hafa enn sem komið er verið tilkynnt þaðan.

Tenerife
Grunur leikur á að eitt tilfelli COVID-19 veirunnar hafi komið upp á H10 Costa
Adeje Palace hótelinu á Tenerife á Spáni. Enn sem komið er, eru ekki
vísbendingar um að tilfellin séu fleiri og veiran hafi breiðst út. Að sinni er
því ekki mælt gegn ferðum til Tenerife. Hins vegar er brýnt að þeir sem annað
hvort eru á svæðinu eða hyggja á ferðalög þangað hugi vel að persónulegu
hreinlæti og fylgi fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda á svæðinu. Sóttvarnalæknir mun í dag safna upplýsingum um hvort og þá hvaða einstaklingar
hafa dvalið á H10 Costa Adeje Palace hótelinu og eru nú komnir til landsins eða
eru á leið heim. Er þeim sem hafa dvalið á hótelinu undanfarnar tvær vikur
ráðlagt að halda sig heima í 14 daga í varúðarskyni. Enn sem komið er engin
þörf á að aðrir ferðamenn en þeir sem hafa bein tengsl við umrætt hótel fari í
sóttkví við heimkomu til Íslands.

Almennt hreinlæti
Sóttvarnalæknir mælist til þess að fólk hugi vel að persónulegu hreinlæti (handþvottur,
klútur fyrir vit við hnerra eða hósta). Almenningur getur með auðveldum hætti
dregið úr sýkingarhættu með því að gæta vel að sínu persónulega hreinlæti.
Handþvottur og almennt hreinlæti í kringum augu, net og munn eru lykilatriði
til að forðast smit og fækka smitleiðum. 

Nýja Kórónaveiran (COVID-19) hagar sér í sumu eins og inflúensa, einkenni eru
svipuð og smitleiðir áþekkar. Einkenni líkjast helst inflúensusýkingu, hósti, hiti, bein- og vöðvaverkir,
þreyta o.s.frv. Veiran getur valdið alvarlegum veikindum hjá þeim sem veikir
eru fyrir lýsir það sér með sýkingum í neðri öndunarfærum og lungnabólgu, sem
koma oft fram sem öndunarerfiðleikar á 4.-8. degi veikinda. Ef einstaklingar finna fyrir veikindum er þeim bent á að hringja
í síma 1700 (fyrir erlend
símanúmer +354 544-4113)
varðandi nánari upplýsingar og
hvernig þeir eigi að nálgast heilbrigðiskerfið. Þessir einstaklingar eru
sérstaklega beðnir um að mæta ekki á bráðamóttöku sjúkrahúsa eða á
heilsugæslustöðvar nema að fengnum ráðleggingum í síma.

Staða mála
Unnið er á óvissustigi nýrrar landsáætlunar vegna
heimsfaraldurs
. Sóttvarnalæknir vinnur að samhæfingu aðgerða, leiðbeiningum og efni fyrir
almenning, heilbrigðisstarfsfólk, ferðaþjónustu og atvinnulífið. Áhættumat sóttvarnalæknis fyrir Ísland er samhljóða áhættumati
Sóttvarnastofnunar Evrópu. Samkvæmt áhættumati þeirra aukast líkur á að
tilfelli komi til EU/EEA (Íslands) frá öðrum löndum en Kína. Staðan er stöðugt
metin. Litlar líkur eru á að veiran verði lýðheilsuógn í löndum Evrópu sem
beita einangrunar- og sóttkvíar aðgerðum. Sýkingin getur hins vegar orðið
íþyngjandi fyrir þá einstaklinga sem sýkjast.

Upplýsingar og nýjar fréttir eru reglulega settar á vef Embættis Landlæknis – www.landlaeknir.is  

 

Ábendingagátt