Ræktun sumarblóma og matjurta
Tilboð í ræktun fyrir árin 2020-2022
Hafnarfjarðarbær og Kópavogsbær óska eftir tilboðum í ræktun sumarblóma og matjurta fyrir árin 2020-2022.
Útboðsgögn verða afhent rafrænt og skulu þeir sem óska eftir útboðsgögnum fyrir verk þetta senda tölvupóst á netfangið ingibjorgs@hafnarfjordur.is frá og með mánudeginum 28. október nk. Í tölvupósti skal koma fram nafn tengiliðar vegna útboðsins, símanúmer, netfang og nafn fyrirtækis.
Tilboð skulu hafa borist í hús umhverfis- og skipulagssviðs Hafnarfjarðarbæjar að Norðurhellu 2, 221 Hafnarfirði, fyrir kl. 11:00 þriðjudaginn 12. nóvember 2019 og verða þau þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þar mæta.
Umhverfis- og skipulagssvið Hafnarfjarðarbæjar
Umhverfissvið Kópavogsbæjar