Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Ratleikur Hafnarfjarðar er farinn af stað í 19. sinn. Markmið með leiknum er að hvetja til útivistar og náttúruskoðunar í fjölbreyttu upplandi Hafnarfjarðar. Verður þú Léttfeti, Göngugarpur eða Þrautakóngur eftir sumarið?
Ratleikur Hafnarfjarðar er farinn af stað í 19. sinn. Markmið með leiknum er að hvetja til útivistar og náttúruskoðunar í fjölbreyttu upplandi Hafnarfjarðar. Leikurinn teygir sig líka inn í nágrannasveitarfélagið Garðabæ enda sameiginleg saga sveitarfélaganna löng.
Leikurinn, sem stendur til 25. september, gengur út á að leita að 27 ratleiksmerkjum sem komið hefur verið fyrir víðs vegar í upplandinu og reyndar innanbæjar líka. Til aðstoðar hafa þátttakendur vandað loftmyndakort þar sem staðsetningin er sýnd og er fróðleikur um hvern stað. Leita má að merkjunum í hvaða röð sem er. Leiknum er skipt upp í þrjá hluta: 1)Léttfeta, 2) Göngugarp og 3) Þrautakóng en þeir sem finna 9, 18 eða öll merkin verða Léttfetar, Göngugarpar eða Þrautakóngur. Dregið er úr innsendum lausnum og hljóta þrír í hverjum hópi vinning en einnig verður dregið úr öllum innsendum lausnum um nokkra viðbótarvinninga en til að eiga möguleika á þeim þarf að mæta á uppskeruhátíð í haust.
Gríðarlega góð viðbrögð hafa verið við leiknum undanfarin ár og þátttaka mjög góð. Þemað í ár er landamerki og eyktarmörk. Hönnunarhúsið ehf. gefur leikinn út, Guðni Gíslason leggur leikinn og nýtur faglegrar ráðgjafar Ómars Smára Ármannssonar sem einnig hefur skrifað fróðleiksmola. Aðalstyrktaraðili leiksins er fyrirtækið VHE, annað árið í röð en auk þeirra styrkja útgáfu leiksins Hafnarfjarðarbær og fyrirtæki í Hafnarfirði.
Þátttakendur eru hvattir til að gleyma ekki að njóta leiðarinnar að merkjunum og að gefa sér góðan tíma við þau og umhverfi þeirra. Sem fyrr er ekki heimilt að hreyfa við merkjunum eða að birta myndir af þeim þar sem lausnarorðin sjást. Hins vegar er fólk hvatt til að segja frá hvernig gengur og deila myndum og upplifun sinni á samfélagsmiðla. Nota má myllumerkið #ratleikur2016.
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…