Ratleikur Hafnarfjarðar 2017

Fréttir

Tuttugasti Ratleikur Hafnarfjarðar er hafinn. Í tilefni tímamótanna er þemað Brot af því besta, valdir staðir úr öðrum leikjum auk viðbótar. Markmið með leiknum er að hvetja til útivistar og náttúruskoðunar í fjölbreyttu upplandi Hafnarfjarðar.

Tuttugasti Ratleikur Hafnarfjarðar er hafinn. Í tilefni tímamótanna er þemað Brot af því besta, valdir staðir úr öðrum leikjum auk viðbótar. Guðni Gíslason leggur leikinn í 10. sinn en það er Hönnunarhúsið ehf. sem hefur umsjón með útgáfunni í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ. Markmið með leiknum er að hvetja til útivistar og náttúruskoðunar í fjölbreyttu upplandi Hafnarfjarðar. Leikurinn teygir sig líka inn í nágrannasveitarfélagið Garðabæ enda sameiginleg saga sveitarfélaganna löng.

Ratleiksmerki í upplandi og innanbæjar

Leikurinn gengur út á að leita að 27 ratleiksmerkjum sem komið hefur verið fyrir víðs vegar í upplandinu og reyndar innanbæjar líka. Til aðstoðar hafa þátttakendur vandað loftmyndakort þar sem staðsetningin er sýnd og er fróðleikur um hvern stað. Leita má að merkjunum í hvaða röð sem er. Leiknum er skipt upp í þrjá hluta: 1). Léttfeta, 2). Göngugarp og 3). Þrautakóng en þeir sem finna 9, 18 eða öll merkin verða Léttfetar, Göngugarpar eða Þrautakóngur. Dregið er úr innsendum lausnum og hljóta þrír í hverjum hópi vinning en einnig verður dregið úr öllum innsendum lausnum um nokkra viðbótarvinninga en til að eiga möguleika á þeim þarf að mæta á uppskeruhátíð í haust.

Nálgast má kortin á eftirfarandi stöðum: 

  • Ráðhúsi Hafnarfjarðar – þjónustuver
  • Bókasafni Hafnarfjarðar
  • Fjarðarkaupum
  • Suðurbæjarlaug
  • Ásvallalaug
  • Ásvöllum
  • Músik og sport
  • Fjallakofanum
  • Altis
  • Burgerinn
  • ………og jafnvel víðar!

Njóta ekki þjóta

Munið að það er ávallt eitthvað meira spennandi nálægt ratleiksstöðunum enda markmið leiksins að leiða þátttakendur vítt og breitt um uppland Hafnarfjarðar og njóta útivistar og náttúrunnar.  Þátttakendur eru hvattir til að gleyma ekki að njóta leiðarinnar að merkjunum og að gefa sér góðan tíma við þau og umhverfi þeirra. Sem fyrr er ekki heimilt að hreyfa við merkjunum eða að birta myndir af þeim þar sem lausnarorðin sjást. Hins vegar er fólk hvatt til að segja frá hvernig gengur og deila myndum og upplifun sinni á samfélagsmiðla. 

Notið myllumerkið: #ratleikur2017

Upplýsingar um leikinn má finna á Facebook síðu Ratleiksins og á www.ratleikur.blog.is

Ábendingagátt