Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Ratleikur Hafnarfjarðar, ævintýraleikur fyrir alla, unga sem aldna, er nú farinn af stað í 23. sinn og stendur fram í september. Markmið með leiknum er að hvetja til útivistar og náttúruskoðunar í fjölbreyttu upplandi Hafnarfjarðar og nágrenni og um leið vekja athygli á þeim fjölmörgu perlum sem leynast í okkar næsta nágrenni.
Ratleikur Hafnarfjarðar , ævintýraleikur fyrir alla, unga sem aldna, er nú farinn af stað í 23. sinn og stendur fram í september. Voru fyrstu ratleikskortin afhent forseta Íslands, hr. Guðna Th. Jóhannessyni og Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra sl. föstudag sem tákn um að leikurinn væri hafinn. Markmið með leiknum er að hvetja til útivistar og náttúruskoðunar í fjölbreyttu upplandi Hafnarfjarðar og nágrenni og um leið vekja athygli á þeim fjölmörgu perlum sem leynast í okkar næsta nágrenni.
Guðni Gíslason, umsjónarmaður ratleiksins, afhenti forseta Íslands, hr. Guðna Th. Jóhannessyni og Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra fyrstu kortin í nýjum húsakynnum Hafró sl. föstudag.
Þeir sem vilja taka þátt í Ratleik Hafnarfjarðar geta sótt sér frítt ratleikskort sem liggur frammi m.a. í bókasafninu, á bensínstöðvum N1, Fjarðarkaupum, ráðhúsinu og víðar. Á kortinu eru merktir inn 27 staðir en leikurinn skiptist í þrjá styrkleikaflokka, Léttfeta, Göngugarp og Þrautakóng en hverjum er í sjálfsvald sett að nýta leikinn á hvern þann hátt sem hentar best.
Þeir sem taka þátt eru hvattir að skrá sig í Facebook hóp leiksins, og setja inn myndir og frásagnir af þátttökunni. Með kortið að vopni leita þátttakendur af ratleiksmerkjum en á þeim eru lausnarorð sem þátttakendur skrá á ratleikskort sitt og þess vegna er mikilvægt að þessi lausnarorð sjáist aldrei á myndum sem deilt er.
Sauðabrekkuskjól
Merkin eru vítt og breytt um bæjarlandið og í ár er einnig farið í land Garðabæjar og einu sinni í land Kópavogs! Þau eru á stöðum sem einhver saga tengist og má lesa um það á ratleikskortinu. Samt eru ratleiksstaðirnir ekki aðalatriðið, heldur leiðin að þeim og því mikilvægt að gefa sér góðan tíma og uppgötva það sem leynist í umhverfi okkar.
Refagildra við Húsfell
Allir sem finna a.m.k. 9 merki geta skilað inn lausnum í haust og keppa um að verða Léttfeti, Göngugarpur eða Þrautakóngur auk þess sem í boði eru útdráttarvinningar fyrir þá sem skilað hafa inn og mæta á uppskeruhátíð sem haldin verður í október.
Móðhola er skemmtileg jarðmyndun í okkar næsta umhverfi
Hönnunarhúsið ehf. gefur út leikinn í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ og það er skátinn og ritstjórinn Guðni Gíslason sem leggur leikinn í 13. sinn. Ómar Smári Ármannsson, leiðsögumaður, fornleifafræðingur og f.v. aðstoðar yfirlögregluþjónn hefur aðstoðað við val á ratleiksstöðum og hefur hann tekið saman fróðleiksmola. Ómar Smári heldur úti fróðleikssíðunni Ferlir.is sem hefur að geyma gríðarlegan fróðleik um náttúru og mannvist á Reykjanesi og víðar.
Aðalstyrktaraðili leiksins í ár er hafnfirska fyrirtækið Terra og fjölmörg fyrirtæki hafa styrkt leikinn á ýmsan hátt. Í ár gefur 66°Norður aðalvinninga í hverjum flokki en fyrirtæki sem gefa vinninga eru Origo, Sundlaugar Hafnarfjarðar, Altis, Von mathús, Fjörukráin, Burger-inn, Músik og Sport, Ban Kúnn, Rif, Tilveran, Gróðrarstöðin Þöll og Fjarðarfréttir. Önnur fyrirtæki sem styrkja leikinn eru Fjarðarkaup, Penninn/Eymundsson, Landsnet og HS Veitur.
Sjá upphaflega frétt á síðu Fjarðarfrétta sem birt var 7. júní.
Nánari upplýsingar um leikinn má finna á eftirfarandi stöðum:
Félagsskapur Karla í skúrnum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…