Rauð veðurviðvörun 7. febrúar – höldum okkur heima

Fréttir

Rauð veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir höfuðborgarsvæðið á morgun mánudag sem þýðir að fólk á ekki að vera á ferðinni nema brýna nauðsyn beri til. Þó svo veður verði skaplegt á morgun og veðurviðvaranir ekki til staðar, þá mun færð spillast og er mikilvægt að fólk haldi sig heima meðan verið er að ryðja vegi og fólk fylgist vel með upplýsingum, en það er tímafrekt að ryðja húsgötur.

Ríkislögreglustjóri
hefur lýst yfir hættustigi almannavarna fyrir allt landið vegna aftakaveðurs á morgun, mánudaginn 7. febrúar 2022.

Rauð
veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir höfuðborgarsvæðið á morgun mánudag sem þýðir að fólk á ekki að vera á
ferðinni nema brýna nauðsyn beri til. Þó svo veður verði skaplegt á morgun og
veðurviðvaranir ekki til staðar, þá mun færð spillast og er mikilvægt að fólk
haldi sig heima meðan verið er að ryðja vegi og fólk fylgist vel með
upplýsingum, en það er tímafrekt að ryðja húsgötur.

Reglulegt skóla-
og frístundastarf fellur niður en
leikskólar og grunnskólar verða engu að síður opnir með lágmarksmönnun fyrir
fólk sem þarf nauðsynlega á vistun fyrir börn sín að halda – það er fólk sem
sinnir neyðarþjónustu, löggæslu, slökkvistörfum og
björgunarsveitarútköllum.

Mikil hætta er á foktjóni, rafmagnstruflunum auk þess sem samgöngur munu raskast verulega um tíma. Fólk er vinsamlegast beðið um að ganga vel frá lausa munum og verktakar eru beðnir um að ganga vel frá framkvæmdarsvæðum. 

Frekari upplýsingar um veðurviðvaranir á síðu Veðurstofunnar

Ábendingagátt