Röskun á opnunartíma sundlauga 21., 22., og 23. ágúst
Heitavatnslaust verður í öllum Hafnarfirði og litlum hluta Garðabæjar frá kl. 22 mánudaginn 21. ágúst til kl. 10 miðvikudaginn 23. ágúst. Heitavatnsleysið hefur áhrif á opnunartíma sundlaug í Hafnarfirði. Laugarnar verða alveg lokaðar þriðjudaginn 22. ágúst en Gym Heilsa opin án búningsklefa.
Heitavatnsleysi hefur áhrif á opnunartíma sundlauganna
Heitavatnslaust verður í öllum Hafnarfirði og litlum hluta Garðabæjar frá kl. 22 mánudaginn 21. ágúst til kl. 10 miðvikudaginn 23. ágúst. Heitavatnsleysið hefur áhrif á opnunartíma sundlauga í Hafnarfirði með eftirfarandi hætti:
- Mán. 21. ágúst: Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug loka kl. 21 í stað 22
- Þri. 22. ágúst: Allar sundlaugar lokaðar
- Mið. 23. ágúst: Allar sundlaugar opna kl. 12
Sérstök athygli er vakin á því að Gym Heilsa verður með opið án búningsklefa í Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug. Fyrirfram þakkir fyrir sýndan skilning!