Rýmri samkomutakmarkanir taka gildi 7. september
Nálægðarreglu verður breytt úr 2 metrum í 1 metra og hámarksfjöldi þeirra sem mega koma saman fer úr 100 manns í 200 þegar nýjar reglur um takmarkanir á samkomum taka gildi á mánudaginn, 7. september. Breytingarnar eru í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.
Sjá tilkynningu á vef Stjórnarráðsins
Gildistími nýrrar auglýsingar: 7. september – 27. september 2020.
Nálægðarreglu verður breytt úr 2 metrum í 1 metra og hámarksfjöldi þeirra sem mega koma saman fer úr 100 manns í 200 þegar nýjar reglur um takmarkanir á samkomum taka gildi á mánudaginn, 7. september. Þetta er meginefni nýrrar reglugerðar Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um takmarkanir á samkomum. Breytingarnar eru í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Sérstök aðgát verður áfram í starfsemi skóla en skólasamfélagið hefur síðustu vikurnar unnið með 1 metra nálægðartakmörkun á milli starfsfólks án þess að
andlitsgrímur séu notaðar. Áfram verður miðað við 2ja metra nálægðartakmörk fyrir
aðila sem ekki tengjast skólanum.
Aðrar breytingar á samkomutakmörkunum sem verða með reglugerðinni eru þessar:
- Hámarksfjöldi á sund- og baðstöðum og líkamsræktarstöðvum fer úr helmingi af leyfilegum hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi í 75%.
- Íþróttir, sviðslistir og önnur menningarstarfsemi getur farið fram þrátt fyrir 1 metra reglu, þ.e. snertingar eru þar heimilar. Um áhorfendur fer eftir almennum reglum um 1 metra og 200 manns í rými.
Reglugerð heilbrigðisráðherra hefur verið send Stjórnartíðindum til birtingar og tekur sem fyrr segir gildi mánudaginn 7. september.
Mynd: Golli