Sækið um leikskólapláss fyrir haustið 2026 fyrir 1. mars
Sækja þarf um leikskólapláss fyrir 1. mars. Sótt er um leikskóladvöl fyrir barnið í Völu.
Í leikskóla er gaman!
Úthlutun leikskólaplássa fyrir haustið fer fram í mars. Sækja þarf um fyrir 1. mars til þess að tryggja að umsókn verði tekin til greina við úthlutun. Sótt er um leikskóladvöl fyrir barnið í Völu.
Lokað verður fyrir nýjar umsóknir á meðan úthlutunarvinnu stendur og eftir 1. mars verður ekki mögulegt að gera breytingar á þegar innsendum umsóknum.
Boð um leikskólapláss verða send út í lok mars.
- Lestu um leikskóla Hafnarfjarðar hér.
Barn getur verið á biðlista og fengið úthlutað plássi þrátt fyrir að lögheimili sé annarsstaðar. Aðlögun getur ekki hafist nema lögheimili sé komið til Hafnarfjarðar.
Hægt er að sækja um fleiri en einn leikskóla í umsókninni. Endilega skoðið þá leikskóla sem eru í boði, hafið samband við viðkomandi leikskólastjóra og kynnið ykkur starfið. Ef það er ekki laust í leikskólann sem er í aðalvali ræður leikskóli í aukavali, ef þar er ekki laust færðu pláss í leikskóla þar sem laust er.
Hægt er að velja dvalartíma frá 4 klukkustundum og upp í 8,5 á dag.