Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Opnað hefur verið sölu á öllum gerðum 240L sorpíláta. Nú geta íbúar sérbýla og aukaíbúða keypt sér eitt tvískipt 240L ílát fyrir plastumbúðir og pappír og pappa og skipt úr fyrir tvö 240L ílát fyrir þessa sömu flokka.
Opnað hefur verið sölu á öllum gerðum 240L sorpíláta. Nú geta íbúar sérbýla og aukaíbúða keypt sér eitt tvískipt 240L ílát fyrir plastumbúðir og pappír og pappa og skipt úr fyrir tvö 240L ílát fyrir þessa sömu flokka. Íbúar eru beðnir um að hafa í huga að tvískipt 240L ílát fyrir pappír og plast (96L plast og 144L pappír) er ekki talið henta sérbýlum með fleiri en þrem íbúum vegna umfangs úrgangs sem að meðaltali fellur til á hverju heimili. Sérstök athygli er vakin á því að ílát undir plast og pappír eru losuð á 4ra vikna fresti og matarleifar og blandaður úrgangur á 2ja vikna fresti. Ef þjappað er í ílátið og úrvinnsluefnið losast ekki sjálfkrafa við losun þá er ílátinu skilað til baka með fasta innihaldinu í. Fasteignir þar sem magn er meira en ílát þola vegna fjölda íbúa eða aukaíbúða þá er hægt að kaupa auka sorpílát og greiða viðbótargjald fyrir losun þeirra. Hafnarfjarðarbær selur einungis 240L ílát fyrir matarleifar, blandaðan úrgang, plastumbúðir og pappír og pappa. Húsfélög geta keypt 660L kör hjá Terra. Kaupa má ný lok á nýrri tegundir sorpíláta hjá þjónustumiðstöð Hafnarfjarðarbæjar að Norðurhellu 2. Þar er einnig hægt að nálgast nýja tappa á lok af nýrri tegundum sorpílata.
Kaupa nýtt ílát
Sorphirðu- og sorpeyðingargjald fyrir hvert fasteignanúmer er samkvæmt gjaldskrá 2023 kr. 64.531.- og greiðist með fasteignagjöldum. Innifalið er losun á 96L matarleifa og 144L blandaðs úrgangs tvisvar í mánuði og 240L plastumbúða og 240L pappírs og pappa einu sinni í mánuði auk reksturs grenndargáma. Hvert sorpílát kostar samkvæmt núverandi gjaldskrá kr. 11.500.- Frí heimkeyrsla er fyrir keypt ílát og ef óskað er þess að eldra ílát sé tekið samhliða, þá er það gert í sömu ferð. Þá þarf ílátið að vera tómt og standa á hvolfi við ruslageymslu og því gott að panta ílát með tilliti til losunartíðni. Þeir íbúar sem kjósa að fækka ílátum eru hvattir til að finna ílátunum annan tilgang. Ílátin er til dæmis hægt að nota undir aðra skilaflokka sem berast eiga beint til Sorpu eða í grenndargáma; dósir, flöskur, gler, málma eða til að geyma áhöld í bílskúrnum eða í garðinum. Ílát sem eru notuð fyrir annað en sorp má ekki geyma samhliða sorpílátunum.
Íbúar og húsfélög í Hafnarfirði eiga sín sorpílát sjálf og sjá um kaup, viðhald og endurnýjun á þeim sem og útskipti milli sorpflokka. Ef íláti er skilað þarf íbúi að kaupa nýtt ef bæta þarf aftur við eða endurnýja síðar meir. Við innleiðingu fjórflokkunar heimilissorps sumarið 2023 fengu sérbýli tvískipt ílát fyrir matarleifar og blandaðan úrgang og fjölbýli 240L ílát fyrir matarleifar afhent til eignar til að geta uppfyllt fjórflokkun. Samkvæmt 10. gr. laga um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003 skal söfnun á matarleifum, blönduðum úrgangi, plasti, pappír og pappa fara fram við íbúðarhús og ber að hafa sorpílát fyrir þessa úrgangsflokka.
Nánari upplýsingar um fjórflokkunina almennt
Sértækar upplýsingar um framkvæmd og fyrirkomulag í Hafnarfirði
Gjaldskrá
Brynja Valdís Waage, nemandi á myndlistarbraut við Fjölbrautaskólann í Garðabæ, heldur myndlistarsýningu í Hellisgerði 10. ágúst næst komandi, á vegum…
Leikskólinn Hlíðarendi fékk Grænfánann afhentan í sjöunda sinn. Síðastliðin tvö ár hefur skólinn unnið með þemað “náttúruvernd”, þar sem börnin…
Stundin var hátíðleg en að sama skapi var stemningin létt þegar Magnús Kjartansson tónlistarmaður fékk sinn hjartastein við Bæjarbíó. Steinninn…
Opni leikvöllurinn á milli Einihlíðar og Bjarmahlíðar í Mosahlíðinni í Setberginu hefur tekið stakkaskiptum. Leikvöllurinn er meðal þeirra sem fá…
Listamaðurinn og tölvuleikjahönnuðurinn Sölvi Snær Einarsson starfar á vegum skapandi sumarstarfa í Hafnarfirði, við gerð tölvuleiks sem ber heitið Ferðalag…
Risatjald með snjóstormi, Páll Óskar, VÆB og lótustjald með tónheilun bíður gesta barnahátíðarinnar Kátt sem haldin verður á Víðistaðatúni 27.…
Glænýr víkingur, ísskápur og blár ópalpakki prýða nú Hafnarfjarðarbæ. Spænski listamaðurinn Juan vinnur nú að því að breyta rafmagnskössum og…
Frestur er til miðnættis 1. september. Óskað er eftir hugmyndum að samsýningum þar sem viðfangsefni, vinnuaðferð eða aðrar hugmyndir tengja…
Ásmegin sjúkraþjálfun, í eigu Kristins Magnússonar sjúkraþjálfara, gefur verkefninu Brúkum bekki, undir stjórn Gylfa Ingvarssonar og Kristins, fimm nýja bekki…
Rán Sigurjónsdóttir, 20 ára grallari og nemi í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands, heldur fræðandi listasýningu um Sædýrasafnið í Hafnarborg…