Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Íslenskt samfélag tekst nú á við miklar áskoranir vegna heimsfaraldurs COVID-19. Gripið hefur verið til aðgerða sem eiga sér engin fordæmi á lýðveldistímum sem meðal annars snúa að skólastarfi í landinu. Í framhaldi af fundi sóttvarnarlæknis, fulltrúa almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélags, Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, Reykjavíkurborgar og Kennarasambands Íslands, laugardaginn 14. mars, kemur eftirfarandi yfirlýsing.
Íslenskt samfélag tekst nú á við miklar áskoranir vegna heimsfaraldurs COVID-19. Gripið hefur verið til aðgerða sem eiga sér engin fordæmi á lýðveldistímum sem meðal annars snúa að skólastarfi í landinu. Í framhaldi af fundi sóttvarnarlæknis, fulltrúa almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélags, Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, Reykjavíkurborgar og Kennarasambands Íslands, laugardaginn 14. mars, kemur eftirfarandi yfirlýsing:
„Almannavarnir standa frammi fyrir nýjum veruleika á hverjum degi. Brýnt er að tilmælum yfirvalda, sem miða að því að tryggja öryggi borgaranna og verja innviði íslensks samfélags, sé fylgt og að ákvarðanataka og framkvæmd séu eins vandaðar og kostur er. Mat sóttvarnarlæknis og yfirvalda á þessari stundu er að þýðingarmikið sé að leik- og grunnskólar starfi áfram. Þessi ákvörðun byggir á eðli sjúkdómsins og mikilvægi skóla í samfélaginu. Starfsemi skóla verður þó skilyrðum háð og ljóst er að skólahald mun raskast. Öryggi og heilsa nemenda og starfsfólks er fyrir öllu. Viðkvæma hópa þarf að verja sérstaklega og tryggja að umsvifalaust sé brugðist við öllum mikilvægum upplýsingum sem varða starfsemi skólanna.
Samfélagið tekur nú allt höndum saman í því verkefni sem blasir við. Skólakerfið mun ekki anna öllum lögbundnum verkefnum á næstu vikum og þarf að forgangsraða. Því er þeim tilmælum beint til almennings, og sérstaklega til atvinnulífsins, að sýna sveigjanleika og ábyrgð. Foreldrar eru beðnir um að fara að þeim tilmælum sem koma frá skólayfirvöldum og skólastjórnendum um skólahald. Skólastarf er ein af grunnstoðum samfélagsins. Skólar hafa meðal annars það hlutverk að auka jöfnuð og vernda börn. Starfsfólk skólanna hefur unnið þrekvirki við að styðja við nemendur á þessum óvissutímum. Þeir aðilar sem undir þessa yfirlýsingu skrifa ætla sér að eiga mikið og öflugt samstarf til að tryggja að brugðist sé hratt og vel við þeim aðstæðum sem upp koma. Í þeirri vinnu mun velferð og öryggi ævinlega hafa forgang. Tryggt verður að upplýsingagjöf um málefni skólanna sé öflug, markviss og heiðarleg.“
https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2020/03/15/Sameiginleg-yfirlysing-vegna-ahrifa-COVID-19-a-skolastarf/ (Opnast í nýjum vafraglugga)
Fuglaflensa hefur greinst á höfuðborgarsvæðinu. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélagsins hefur samið við Dýraþjónustu Reykjavíkur um að fjarlæga dauða fugla. Meindýraeyðar þurfa staðsetningu…
Drög að nýrri umhverfis- og auðlindastefnu fyrir Hafnarfjörð liggja fyrir. Kallað er eftir þátttöku íbúa í rýni á drögum og…
Ákveðið hefur verið að setja upp tvo nýja ærslabelgi í Hafnarfirði á árinu 2025 á völdum opnum svæðum í bænum…
Alls voru 524 nýjar íbúðir fullbúnar í Hafnarfirði í fyrra. Þær bættust í hóp 11 þúsund íbúða í bæjarfélaginu. Nýjum…
FH, Hafnarfjarðarbær og Íþróttabandalag Hafnarfjarðar (ÍBH) hafa tekið höndum saman og bjóða frá 15. janúar fótboltaæfingar fyrir börn í 1.-10.…
Tafir hafa orðið á sorphirðu nú á nýju ári. Ljóst er að tunnurnar verða tæmdar viku á eftir áætlun. Unnið…
Algjörar skvísur verður sú fimmtánda í haustsýningarröð Hafnarborgar. Verkefnið hefur það að markmiði að gefa breiðu sviði sýningarstjóra kost á…
Alls sátu 100 foreldrar PMTO-foreldrafærninámskeið hjá Hafnarfjarðarbæ í fyrra. Foreldrarnir fá kennslu og eru þjálfaðir í styðjandi leiðum í uppeldishlutverki…
Nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Valdimar Víðisson, er með opna viðtalstíma alla þriðjudaga frá kl. 9:30 – 11:30. Viðtalstímar eru bókaðir í…
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um styrki úr húsverndarsjóði Hafnarfjarðar. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi eldri húsa…