Samið um kaup á gæðaritföngum fyrir grunnskólanemendur

Fréttir

Ritfangakaup til grunnskólanemenda í Hafnarfirði koma nú í annað skipti. Þetta verkefni er enn í mótun og unnið er eftir margvíslegum sjónarmiðum að tryggja nemendum góð ritföng, 

Hafnarfjarðarbær
hefur ritað undir samning við Pennann/Eymundsson um kaup á ritföngum fyrir
nemendur í grunnskólum Hafnarfjarðar fyrir skólaárið 2018-2019.
Samningsundirritunin er lok á löngu ferli sem staðið hefur frá byrjun árs 2018
við að skilgreina vörur og undirbúa útboð á ritföngum. Penninn/Eymundsson
reyndist hlutskarpastur í útboðinu af þremur aðilum sem buðu í ritföngin. Alls
reyndust útboðspöntunin hljóða upp á um 176 þúsund vörur (137 vörutegundir sem
hægt var að velja úr sem lutu ákveðnum gæðaviðmiðum) sem deilast á þá 4000
nemendur sem eru í grunnskólunum og samningsupphæð er um 30 milljónir króna.

Hluti
af ritfangaútboðinu var að ákveðnar vörur kæmu frá Múlalundi, vinnustofu SÍBS
fyrir fólk með skerta starfsorku, eða þær vörur sem Múlalundur framleiddi
sjálft (því Múlalundur flytur einnig inn vörur). Með kaupum á vörunum frá
Múlalundi var verið að kaupa gæðavörur um leið og íslensk framleiðsla væri
studd. Að sögn Múlalundar eru þeir afar þakklátir Hafnarfjarðarbæ fyrir þetta
frumkvæði í ritfangakaupum til grunnskólanemenda sem hefur orðið til þess að
önnur sveitarfélög (a.m.k. 10 í dag) hafa farið
sömu leið og Hafnarfjörður í ritfangakaupum sínum. Þá segir í fréttatilkynningu
frá Múlalundi að vegna
þessara viðskipta hafi verið bætt við starfsfólki í vinnu hjá Múlalundi sem
áður hafi ekkert haft fyrir stafni. Einnig að það plast sem Múlalundur notar í framleiðslu
sinni standist mikla öryggis- og gæðastaðla og sé 40-60% endurunnið plast.
Plastið hafi einnig góða endingu og muni endast vel í skólastarfi, langt umfram
það sem margt ritfanga úr plasti á almennum markaði geti gert.

Ritfangakaup
til grunnskólanemenda í Hafnarfirði koma nú í annað skipti. Þetta verkefni er
enn í mótun og unnið er eftir margvíslegum sjónarmiðum að tryggja nemendum góð
ritföng, stuðla að sem minnstu vistspori og viðhafa gæði ritfanga sem kemur
öllum nemendum til góða óháð efnahag og félagslegri stöðu. Starfsfólk
grunnskólanna er enn að læra á nýtt fyrirkomulag þar sem mikilvægt er að kenna
nemendum að fara vel með ritföngin og taka ábyrgð á notkun þeirra í daglegu
skólastarfi í samræmi við verklag í
hverjum skóla. Áfram er gert ráð fyrir að nemendur þurfi að hafa eigin ritföng
heima til að sinna heimanámi, t.d. blýant, strokleður og yddara að lágmarki,
þótt flest öll gögn séu færð nemendum, þ.e. ritföng í skóla, stílabækur og
önnur kennslu- og námsgögn. 

Ritföngin
munu koma í skólana í byrjun ágúst og verða tiltæk þegar nemendur koma til
skóla þann 22. ágúst þegar skólasetning verður í grunnskólum Hafnarfjarðar.

 Myndin
hér sýnir frá undirritun samningins. Á myndinni eru fulltrúar
Pennans/Eymundsson, Múlalundar og Hafnarfjarðarbæjar.

Ábendingagátt