Samtal um skipulag Vesturbæjar – seinni fundur
Hafnarfjarðarbær býður til samráðsfunda vegna skipulagsvinnu er snýr að Vesturbæ Hafnarfjarðar og Verndarsvæðis í byggð. Seinni fundinum verður streymt á vef og Facebook síðu Hafnarfjarðarbæjar þriðjudaginn 31. mars næstkomandi frá kl. 17:00 – 18:30.
Hafnarfjarðarbær býður til samráðsfunda vegna skipulagsvinnu er snýr að Vesturbæ Hafnarfjarðar og Verndarsvæðis í byggð fimmtudaginn 5. mars og þriðjudaginn 31. mars næstkomandi.
Seinni fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 31. mars kl.17-18:30 og verður streymt á vef og Facebook síðu Hafnarfjarðarbæjar. Þar verður hugmyndavinna kynnt íbúum. Á þessum fundi gefst áhugasömum tækifæri til að skoða og spyrja um þær hugmyndir sem þegar liggja fyrir.
Bein útsending á vef og Facebook síðu Hafnarfjarðarbæjar
Fundurinn verður í beinni útsendingu (streymi) á Facebooksíðu Hafnarfjarðarbæjar og hér á vefnum. Hægt verður að beina fyrirspurnum að tillöguhöfundum í spjalli með útsendingunni eða senda spurningar á skipulag@hafnarfjordur.is að honum loknum.
- Glærukynning frá samráðsfundi vegna skipulagsvinnu er snýr að Vesturbæ Hafnarfjarðar – seinni fundur
Á fyrri fundi þann 5. mars kl.17:00 – 18:30 var farið yfir hugtakið Verndarsvæði í byggð, hvað felst í því og hvernig á það við um Vesturbæinn. Jafnframt var gerð grein fyrir þeirri fornleifa- og húsaskráningu sem gerð hefur verið á svæðinu. Hér er hægt að sækja glærukynningu frá fundinum: Vesturbær Hafnarfjarðar – Verndarsvæði í byggð – glærukynning frá samráðsfundi vegna skipulagsvinnu er snýr að Vesturbæ Hafnarfjarðar frá Gláma·Kím. arkitektar
Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta!