Sáttmáli um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu

Fréttir

Hafnarfjarðarbær ásamt fimm öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu hafa undirritað tímamótasamkomulag við íslenska ríkið um metnaðarfulla uppbyggingu á samgönguinnviðum og almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu til fimmtán ára. 

Hafnarfjarðarbær ásamt fimm öðrum sveitarfélögum á
höfuðborgarsvæðinu, Garðabæ, Kópavogi, Mosfellsbæ, Reykjavík og Seltjarnarnesi,
hafa undirritað tímamótasamkomulag við íslenska ríkið um metnaðarfulla
uppbyggingu á samgönguinnviðum og almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu til
fimmtán ára. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum, þann 16. október
síðastliðinn, fyrirliggjandi samkomulag um skipulag og fjármögnun uppbyggingar
á samgönguinnviðum til og með 2033.

Samkomulagið felur í sér sameiginlega framtíðarsýn og
heildarhugsun fyrir skipulagssvæðið. Markmiðið er að auka öryggi, bæta
samgöngur fyrir alla ferðamáta og minnka tafir, stórefla almenningssamgöngur og
draga úr mengun af völdum svifryks og losun gróðurhúsalofttegunda til að standa
við loftslagsmarkmið stjórnvalda og sveitarfélaga. Meðal annars er gert ráð
fyrir umtalsvert auknu fjármagni til að bæta umferðarflæði og öryggi vegfaranda
um og í gegnum Hafnarfjörð.

Markmið
samkomulagsins eru fjórþætt:

  • Greiðari samgöngur og fjölbreyttir ferðamátar. Greiðar,
    hagkvæmar og skilvirkar samgöngur á höfuðborgarsvæðinu með jafnri uppbyggingu
    innviða allra samgöngumáta.
  • Kolefnislaust samfélag. Stuðla að því að ná
    loftslagsmarkmiðum ríkis og sveitarfélaga um sjálfbært, kolefnishlutlaust
    borgarsamfélag með eflingu almenningssamgangna og deilihagkerfis í samgöngum,
    bættum innviðum fyrir vistvæna samgöngumáta og hvetja til breyttra ferðavenja
    og orkuskipta.
  • Aukið umferðaröryggi. Stuðla að auknu
    umferðaröryggi með það að markmiði að draga stórlega úr umferðarslysum.
  • Samvinna og skilvirkar framkvæmdir. Tryggja
    skilvirka framkvæmd og trausta umgjörð verkefnisins, m.a. með því að skilgreina
    samstarfsform, kostnaðarskiptingu, ábyrgð á tilteknum aðgerðum og
    fjármögnunarleiðir.

Heildarfjármögnun samgönguframkvæmda á tímabilinu er um 120 milljarðar. Ríkið mun leggja fram 45 milljarða og sveitarfélög 15 milljarða. Gert er ráð fyrir að sérstök fjármögnun standi straum af 60 milljörðum kr. Á tímabilinu verða 52,2 milljarðar lagðir í stofnvegi, 49,6 milljarðar í innviði Borgarlínu og almenningssamgöngur, 8,2 milljarðar í göngu- og hjólastíga, göngubrýr og undirgöng og 7,2 milljarðar í bætta umferðarstýringu og sértækar öryggisaðgerðir. Þá verður þegar í stað ráðist í að innleiða stafræna umferðarstýringu á höfuðborgarsvæðinu.

Nánar má lesa um sáttmálann á heimasíðu Stjórnarráðsins en þar er meðal annars að finna sáttmálann í heild sinni, framkvæmdaáætlun, staðreyndir og tölur ásamt kynningarglærum. 

Ábendingagátt