Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Vegagerðin og Hafnarfjarðarbær undirrituðu í dag samning um kostnaðarskiptingu vegna framkvæmda við tvöföldun Reykjanesbrautar milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns. Framkvæmdin er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Hafnarfjarðarbæjar, HS Veitna, Mílu, Orkufjarskipta, Ljósleiðarans, Carbfix og Veitna.
Vegagerðin og Hafnarfjarðarbær undirrituðu í dag samning um kostnaðarskiptingu vegna framkvæmda við tvöföldun Reykjanesbrautar milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns. Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 1. júní síðastliðinn fyrirliggjandi samning þar sem kostnaðarhlutdeild Hafnarfjarðarbæjar í öllum kostnaði verksins er um 10,3%. „Síðasti áfangi tvöföldunar Reykjanesbrautar í Hafnarfirði er í sjónmáli og er það mikið fagnaðarefni. Við höfum lengi beðið eftir þessari stund enda Reykjanesbrautin ein fjölfarnasta braut landsins og framkvæmdin mikilvægur innviður í uppbyggingu samgöngumannvirkja og eflingu samgangna í Hafnarfirði og á höfuðborgarsvæðinu öllu,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
Framkvæmdin er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Hafnarfjarðarbæjar, HS Veitna, Mílu, Orkufjarskipta, Ljósleiðarans, Carbfix og Veitna.
Fremri röð frá vinstri: Valdimar Víðisson formaður bæjarráðs, Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Óskar Örn Jónsson forstöðumaður hjá Vegagerðinni og Jón Heiðar Gestsson verkefnastjóri. Aftari röð frá vinstri: Sigurður Haraldsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs, Helga Stefánsdóttir forstöðumaður framkævmda- og rekstrardeildar hjá Hafnarfjarðarbæ og Sigurður Nordal sviðsstjóri stjórnsýslusviðs Hafnarfjarðarbæjar.
Vegagerðin og ÍAV undirrituðu verksamning um tvöföldun Reykjanesbrautar milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns ásamt aðliggjandi hliðarvegum þann 17. maí síðastliðinn. Tilboð voru opnuð 5. apríl en ÍAV bauð tæpa fjóra milljarða króna í verkið sem var talsvert undir áætluðum verktakakostnaði. Undirbúningur er hafinn og framkvæmdir að hefjast á verkstað. Framkvæmdin felur í sér lagningu Reykjanesbrautar á um 5,6 km kafla og inni í verkinu er einnig bygging brúarmannvirkja og undirganga fyrir akandi, gangandi og hjólandi. Á Reykjanesbraut verða gerð mislæg gatnamót við Rauðamel en þar er að finna nýtt framtíðar byggingarsvæði Hafnarfjarðarbæjar. Mislæg gatnamót við Straumsvík verða stækkuð og bætt við tengingu að iðnaðarsvæði Hafnarfjarðar við Álhellu. Einnig verða gerðir eftirlitsstaðir við Reykjanesbraut og stofnstígur fyrir gangandi og hjólandi milli Hraunavíkur og Straums ásamt tengingu við Straumsvík. Vegagerðin mun hafa umsjón með verkinu og sjá um eftirlit sem í þessu verki verður í höndum verkfræðistofunnar Hnits h/f. Stefnt er að því að verkinu verði að fullu lokið í lok júní 2026.
Vegagerðin hefur gefið út myndband um framkvæmdina:
Tilkynning á vef Vegagerðarinnar
Félagsskapur Karla í skúrnum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…