Sigurður nýr sviðsstjóri stjórnsýslu

Fréttir

Bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum í dag að ráða Sigurð Nordal í stöðu sviðsstjóra stjórnsýslusviðs. Sigurður starfaði á árinu 2020 tímabundið við ráðgjöf og aðstoð við stjórnsýslu Hafnarfjarðarbæjar og vann þar m.a. að mikilvægum fjárhagslegum greiningum og úttektum. Sigurður mun hefja störf í mars.

Bæjarstjórn
Hafnarfjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum í dag að ráða Sigurð
Nordal í stöðu sviðsstjóra stjórnsýslusviðs. Sigurður starfaði á
árinu 2020 tímabundið við ráðgjöf og aðstoð við stjórnsýslu Hafnarfjarðarbæjar og vann þar
m.a. að mikilvægum fjárhagslegum
greiningum og úttektum. Sigurður mun hefja störf í mars.

SigurdurNordal

Sigurður Nordal er nýr sviðsstjóri stjórnsýslusviðs Hafnarfjarðarbæjar

Sigurður Nordal tekur
við starfinu af Sigríði Kristinsdóttur sem skipuð hefur verið
í embætti sýslumanns á höfuðborgarsvæðinu. Sigurður nam hagfræði við
Háskóla Íslands og Columbia háskóla í New York. Hann starfaði hjá Seðlabanka
Íslands, bönkum og fjármálafyrirtækjum í ýmsum ábyrgðarstörfum um sextán ára
skeið. Sigurður var framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands við flutning
hljómsveitarinnar í Hörpu og fyrstu árin í nýju tónlistarhúsi. Þá stýrði hann
viðskiptadeild Morgunblaðsins um árabil. Sigurður hefur víðtæka
þekkingu og reynslu af rekstri og verkefnum m.a.
sveitarfélaga og hefur starfað sem ráðgjafi m.a. fyrir opinbera aðila og
setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka.

Hagvangur
annaðist ráðningarferlið og sóttu alls 30 um stöðuna.

Við bjóðum
Sigurð velkominn til starfa! 

Ábendingagátt