Sigurjón Ólafsson nýr sviðsstjóri þjónustu og þróunar

Fréttir

Sigurjón Ólafsson hefur verið ráðinn sviðsstjóri á nýju sviði þjónustu og þróunar hjá Hafnarfjarðarbæ. Sigurjón hefur frá árinu 2013 rekið sitt eigið fyrirtæki, Fúnksjón vefráðgjöf, auk þess að starfa sem aðjúnkt í vefmiðlun við Háskóla Íslands. Sigurjón mun hefja störf 1. ágúst. 

Sigurjón Ólafsson hefur verið ráðinn sviðsstjóri á nýju
sviði þjónustu og þróunar hjá Hafnarfjarðarbæ. Sigurjón hefur frá árinu 2013 rekið sitt eigið
fyrirtæki, Fúnksjón vefráðgjöf, auk þess að starfa sem aðjúnkt í vefmiðlun við
Háskóla Íslands. Fyrir þann tíma starfaði Sigurjón sem deildarstjóri vef- og
netbanka Íslandsbanka, vef- og kynningarstjóri hjá Háskóla Íslands og deildarstjóri
vefdeildar hjá Kaupþing banka. Sigurjón er með meistaragráðu í alþjóðlegum
samskiptum.

SigurjonOlafssonSigurjón hefur verið þátttakandi í stafrænni vegferð margra
fyrirtækja og ekki síst opinberra fyrirtækja þar sem hann hefur stýrt stórum
verkefnum og aðstoðað við að breyta stafrænni ásýnd og við að innleiða ný
vinnubrögð og hugsunarhátt. Verkefni
Sigurjóns síðustu misseri hafa sér í lagi snúið að notendamiðaðri hönnun og
þróun notendaferla.

Alls bárust 48 umsóknir um starf sviðsstjóra en 5 drógu
umsókn sína til baka. Sigurjón mun hefja störf 1. ágúst. 

 Við bjóðum Sigurjón velkominn til starfa.

Ábendingagátt