NULL
Hinn árlegi sjálfboðaliðadagur Skógræktarfélags Hafnarfjarðar verður sunnudaginn 27. september kl. 11.00 – 13.00: Gróðursett verður í Vatnshlíðarlund við Hvaleyrarvatn.
Vatnshlíðarlundur er minningarlundur um hjónin Hjálmar R. Bárðarson og Else S. Bárðarson.
Mæting í Vatnshlíð norðan við Hvaleyrarvatn, á hægri hönd þegar ekið er niður að Hvaleyrarvatni frá Kaldárselsvegi. Boðið upp á hressingu í Þöll að gróðursetningu lokinni.
Allir velkomnir – Plöntur og verkfæri á staðnum.