Sjóður Friðriks og Guðlaugar

Fréttir

Auglýst er eftir umsóknum um styrk úr Sjóði Friðriks Bjarnasonar og Guðlaugar Pétursdóttur. Hlutverk sjóðsins er að efla tónlistarlíf í Hafnarfirði og styrkja hafnfirska nemendur til framhaldsnáms í tónlist og fræðimenn í tónlist.

Umsækjandi skal gefa greinargóða lýsingu á námi sínu eða fyrirhuguðu verkefni. Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 27. nóvember 2017 sem er fæðingardagur Friðriks. Sótt er um á mínum síðum á hafnarfjordur.is.

Í erfðaskrá frá 1960 arfleiddu hjónin Friðrik Bjarnason og Guðlaug Pétursdóttir Hafnarfjarðarbæ af miklum hluta eigna sinna og mæltu svo fyrir að bækur og munir skyldu varðveittar í bókasafninu og að stofnaður væri sjóður til að “efla tónlistarlíf í Hafnarfirði með þeim hætti er best þykir fara hverju sinni, þó einkum til eflingar sönglífs í bænum“, og „styrkja nemendur til tónlistarnáms og fræðimenn í tónlist“. Styrkveiting fer fram í desember.

Stjórn sjóðsins 2017 skipa:
Andrés Þór Gunnlaugsson
Helga Loftsdóttir
Ingibjörg Þorsteinsdóttir

Myndin er af Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna og tengist greininni ekki beint.

Ábendingagátt