Skapandi sumarstörf – Logi – Ballett myndbandsverk

Fréttir

Logi Guðmundsson er 18 ára ballettdansari, alinn upp í Norðurbæ Hafnarfjarðar og hefur iðkað ballett frá aðeins átta ára aldri. Ungi dansarinn er nú útskrifaður úr einum virtasta ballettskóla heims í San Francisco og vinnur að listrænu myndbandsverki í sumar á vegum skapandi sumarstarfa í Hafnarfirði.

Leitaði út fyrir landssteinana

“Ég heiti Logi Guðmundsson og er 18 ára gamall ballettdansari. Ég ólst upp í Norðurbænum í Hafnarfirði þar sem er alveg hreint dásamlegt að búa. Átta ára hóf ég nám við Listdansskóla Íslands, þar vaknaði mikill áhugi og ástríða fyrir balletti. Mig dreymir um að verða atvinnu ballettdansari en til þess, þurfti ég að leita mér menntunnar út fyrir landssteinana þar sem ekkert slíkt nám er í boði á Íslandi. Ballett er eitt erfiðasta dansformið að ná tökum á og krefst margra ára þjálfunar og setur miklar líkamlegar kröfur.”

Undirstrikar tilfinningalega dýpt og færni ballett dansarans

Logi nýtti sér náttúru Hafnarfjarðar í verkið og samtvinnar þannig sína hæfileika og sérþekkingu við fallegt umhverfi heimabæjar síns. “Verkið mitt nefndi ég Hafnarfjörður Heimahöfn og er þetta myndbandsverk: Verkið miðar að því að búa til myndskeið sem sýnir listsköpun og hæfileika ballettdansara í gegnum sjónrænt grípandi myndband, sem verður tekið á þekktum stöðum í Hafnarfirði. Myndbandið mun innihalda frumlegan dans og hreyfingar sem undirstrikar tilfinningalega dýpt og færni ballett dansarans. Verkið verður hannað til að enduróma og vekja tilfinningar áhorfenda fyrir fegurð dansarans og fjarðarins okkar fagra.”

Í námi við einn virtasta ballettskóla heims í San Francisco

Logi stundar nám í San Fransisco Ballet School í Kalíforníu, Bandaríkjunum, og er fyrstur íslendinga til að komast svona langt í þessu námi, en inntökuskilyrði eru með þeim ströngustu í heiminum. Á Íslandi eru ekki mörg úrræði fyrir ballettdansara og örfá húsnæði sem eru ásættanleg fyrir æfingar á þessari listrænu íþrótt.
“Ég var meðal þeirra fáu sem fengu boð um skólavist í einn virtasta ballettskóla heims í San Francisco, á 7.stig, eftir sumarnámskeið skólans árið 2022. Mér var boðið að halda áfram á 8. stigi eftir vorprófið 2023, sem er útskriftarár skólans. Kláraði það og útskrifaðist sem ballettdansari eftir vorprófið 2024. Eftir það fékk ég boð um að verða nemi í trainee programminu við San Francisco ballettinn, sem aðeins 4 af okkur 12 útskriftar drengjum fengu og sama með stúlkurnar.”

Sjá viðburð á Facebook

Hér má fylgjast með hæfileikaríka dansaranum á Instagram

Við hvetjum alla áhugasama til að mæta á glæsilega sýningu Loga í Hafnarborg fimmtudaginn 8. ágúst kl.17:30!

 

UM SKAPANDI SUMARSTÖRF 2024

Sumarið 2021 ákvað Hafnarfjarðarbær í samstarfi við Ungmennahús bæjarins, Hamarinn, að endurvekja verkefnið “Skapandi sumarstörf” sem hafði verið starfrækt sumarið 2017. Þá bauðst einstaklingum og hópum á aldrinum 18-25 ára að koma með hugmyndir að skapandi verkefnum í Hafnarfirði. Valdir hópar fengu tækifæri til að starfa við ýmis skapandi verkefni á ýmsum sviðum lista sem einnig myndu lífga upp á mannlífið í bænum, gleðja ferðamenn og íbúa með einum eða öðrum hætti. Starfsfólki Skapandi sumarstarfa, sem rekið er sem hluti af Vinnuskóla Hafnarfjarðar er ætlað að glæða bæinn lífi, gera hann skemmtilegri, fallegri og fjölbreyttari með listrænum og skapandi uppákomum. Verkefnin eru fjölbreytt og höfða til mismunandi aldurshópa og áhugasviða. Klara Ósk Elíasdóttir er verkefnastýra Skapandi sumarstarfa.

Í ár eru sjö fjölbreyttir hópar og einstaklingar sem starfa á vegum skapandi sumarstarfa og verða þau kynnt vikulega í sumar.

Ábendingagátt