Skapandi sumarstörf – Sindri

Fréttir

Myndlistamaðurinn og listmálarinn Sindri Kristinsson málar í sumar skordýr í hinum ýmsu stærðum og gerðum á mismunandi form, annars vegar striga, steinplötur og pappír. Sindri mun sýna verkin við hátíðlega athöfn í Hafnarborg þann 18. ágúst.

MYNDLIST – “INSECTA HAFNARFJÖRÐUR” / SINDRI KRISTINSSON

Myndlistamaðurinn og listmálarinn Sindri Kristinsson málar í sumar skordýr í hinum ýmsu stærðum og gerðum á mismunandi form, annars vegar striga, steinplötur og pappír. Sindri mun sýna verkin við hátíðlega athöfn í Hafnarborg þann 18. ágúst næstkomandi. Sindri rannsakar viðfangsefni sitt að hverju sinni gaumgæfilega, les sér til um dýrin og kynnist þeim áður en hann glæðir þau lífi á myndum sínum. Við fáum að sjá allt aðra hlið á annar óvinsælum dýrum sem eru hin glæsilegustu í höndunum á Sindra.

IMG_2228

Screenshot-36-

Sama dag og Sindri frumsýnir verkin sín mun hann einnig taka þátt í frumflutningi frumsamins strengjakvartetts í Gamla Apótekinu, Hafnarborg, sem var skrifað um hér á vefnum í síðustu viku á vegum Skapandi sumarstarfa, sem ber heitið Óh sú. Sindri er einnig fiðluleikari í Sinfóníuhljómsveit unga fólksins.

Hér má sjá mynd af Óh sú kvartettnum.

IMG-4507_1660288047328


UM SKAPANDI SUMARSTÖRF 2022

Sumarið 2021 ákvað Hafnarfjarðarbær í samstarfi við Ungmennahús bæjarins, Hamarinn, að endurvekja verkefnið “Skapandi sumarstörf” sem hafði verið starfrækt sumarið 2017. Þá bauðst einstaklingum og hópum á aldrinum 18-20 ára að koma með hugmyndir að skapandi verkefnum í Hafnarfirði. Valdir hópar fengu tækifæri til að starfa við ýmis skapandi verkefni á ýmsum sviðum lista sem einnig myndu lífga upp á mannlífið í bænum, gleðja ferðamenn og íbúa með einum eða öðrum hætti. Starfsfólki Skapandi sumarstarfa, sem rekið er sem hluti af Vinnuskóla Hafnarfjarðar er ætlað að glæða bæinn lífi, gera hann skemmtilegri, fallegri og fjölbreyttari með listrænum og skapandi uppákomum. Verkefnin eru fjölbreytt og höfða til mismunandi aldurshópa og áhugasviða. Klara Ósk Elíasdóttir er verkefnastýra Skapandi sumarstarfa.

Hér má lesa meira um þau sex fjölbreyttu verkefni sem eru hluti af skapandi sumarstörfum í sumar Skapandi sumarstörf 2022 | Fréttir | Hafnarfjörður (hafnarfjordur.is)

Ábendingagátt