Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Á árinu 2020 var úthlutað 24 lóðum í Skarðshlíðarhverfi undir 38 íbúðir og í 1. áfanga í Hamranesi 8 fjölbýlishúsalóðum fyrir alls 296 íbúðir. Allar einbýlishúsalóðir Skarðshlíðar eru seldar og hver að verða síðastur til að tryggja sér lóð undir sérbýli á svæðinu. Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í dag voru samþykktar umsóknir um 14 lóðir.
Á árinu 2020 var úthlutað 24 lóðum í Skarðshlíðarhverfi undir 38 íbúðir og í 1. áfanga í Hamranesi 8 fjölbýlishúsalóðum fyrir alls 296 íbúðir. Allar einbýlishúsalóðir Skarðshlíðar eru seldar og hver að verða síðastur til að tryggja sér lóð undir sérbýli á svæðinu. Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í gær voru samþykktar umsóknir um 14 lóðir. Þannig eru nú einungis 28 lóðir lausar til úthlutunar í öllu Skarðshlíðarhverfi; 3 lóðir fyrir parhús, 24 lóðir fyrir tvíbýlishús og 1 lóð fyrir þríbýlishús. Þegar liggur einhver fjöldi umsókna fyrir fund bæjarráðs Hafnarfjarðar þann 28. janúar nk.
„Þessi mikli áhugi á sérbýlislóðum í hverfinu er til marks um hve frábær staðsetning Skarðshlíðarhverfisins er. Tvöföldun Reykjanesbrautar, tilkoma Ásvallabrautar og tilfærsla á Hamraneslínum hefur án efa ýtt undir áhugann á hverfinu sem verður til lengri tíma litið með fallegri og fjölskylduvænni íbúðahverfum á stór-höfuðborgarsvæðinu. Greiður aðgangur að verslun og þjónustu, öflugu íþróttastarfi, grunnskóla, leikskóla og tónlistarskóla hefur líka mikið að segja enda einstakt á nýbyggingarsvæðum sem þessum. Einnig heillar nálægðin við náttúruna og fallegt uppland Hafnarfjarðar sem sífellt fleiri njóta með hverju árinu sem líður,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
Hér má sjá hvernig Skarðshlíðarhverfi fellur að núverandi byggð. Hamranesið mun byggjast upp við hlið Skarðshlíðarhverfis.
Vinsælt búsetusvæði með uppland Hafnarfjarðar í bakgarðinum
Mikil uppbygging hefur átt sér stað í Skarðshlíðarhverfi undanfarið. Frumbyggjar fluttu í hverfið sumarið 2019 og þá þegar var starfsemi Skarðshlíðarskóla komin á fullt og leikskóli opnaður um haustið undir sama þaki. Sumarið 2020 var húsnæði skólasamfélagsins í Skarðshlíð fullbyggt og hýsir það í dag heildstæðan grunnskóla, fjögurra deilda leikskóla, tónlistarskóla og íþróttahús fyrir bæði skólastigin. Þjóna skólarnir og starfsemi skólanna nýrri byggð í Skarðshlíð og Vallahverfi að hluta. Einnig er framundan frekari uppbygging íþróttamannvirkja á Ásvöllum sem bætir enn nærliggjandi þjónustu og aðstöðu i hverfunum. Tvöföldun Reykjanesbrautar lauk í árslok 2020 og þá um vorið hófust framkvæmdir við Ásvallabraut sem tengir saman Vallahverfi, Skarðshlíðarhverfi og Ásland. Ráðgert er að Ásvallabrautin verði tilbúin haustið 2021 og þar með verða Skarðshlíð og hverfi innarlega á Völlunum betur tengd Kaldárselsvegi og Reykjanesbraut.
Skipulagsvinna, gatnagerð og innviðauppbygging er í fullum gangi þessa dagana í Hamranesi sem liggur við hlið Skarðshlíðarhverfis og Vallahverfis og verður kapp lagt á uppbyggingu á hverfinu til að mæta eftirspurn og áhuga eftir hvorutveggja íbúðum og lóðum á svæðinu. „Hamranesið er um 25 hektara nýbyggingarsvæði og er grunn hugmyndin sú að skipulag hverfisins endurspegli þörf á markaði eftir fjölbreyttum stærðum íbúða. Hamranesið verður einstakt hverfi“ segir Rósa.
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…