Skipi Hafró siglt að Háabakka í fyrsta sinn

Fréttir

Árna Friðrikssyni RE 200, einu af rannsóknarskipum Hafrannsóknarstofnunar, var siglt að Háabakka við Fornubúðir fyrr dag. Um var að ræða tilraun með að leggjast að hafnarbakkanum, áður en full starfsemi Hafrannsóknarstofnunar hefst í vor.

Einmuna blíða var þegar Árni Friðriksson lagðist að bryggju. Rannsóknarskipið er 20 ára gamalt, tæplega 70 metra stálskip og 670 nettótonn og 6000 hestöfl. Gert er ráð fyrir að tvö slík skip geti verið við bryggjuna á sama tíma. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem Olga Björt Þórðardóttir tók, tókst vel til en heyra mátti á reynslumiklum fulltrúum áhafnar að það mætti gjarnan bæta við nokkrum bryggjupollum.

Bæjarblaðið Hafnfirðingur tók meðfylgjandi myndir og birti þessa frétt á vef Hafnfirðings

Framtíðarhúsnæði Hafrannsóknarstofnunar við Fornubúðir
Bryggjuendinn þakinn gúmmídekkjum eins og vera ber
Enn er unnið á fullu að framkvæmdum á bryggjunni þar til starfsemi hefst
Gert er ráð fyrir tveimur skipum þarna í röð
Árni Friðriksson kominn að bryggju
Hjálpast að með festingar
Landkrabbar og skipverjar kallast á um aðstæður
Haddi skipstjóri vel merktur
Einn skipverjanna
Kominn upp að
Reynsla
Skjáskot af vef Hafró
Ábendingagátt