Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðar að Óseyrarbraut 24 í Hafnarfirði á fundi sínum þann 23. 11. 2022 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi Suðurhafnar. Tillagan gerir ráð fyrir hækkun nýtingarhlutfalls, auknu byggingarmagni, hækkun hámarkshæðar bygginga og nýjum aðkomuleiðum að lóð.

Tillagan verður til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar Strandgötu 6 og á umhverfis- og skipulagssviði að Norðurhellu 2, frá 29.1110.01.2023. Einnig er hægt að skoða gögnin hér að neðan.

Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna á netfangið skipulag@hafnarfjordur.is eða skriflega í þjónustuver að Strandgötu 6 eigi síðar en 10.01.2023.

Athugasemdir eða ábendingar skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa eigi síðar en 4.11.2022 á netfangið skipulag@hafnarfjordur.is eða stílaðar á:

Hafnarfjarðarbær
bt. umhverfis- og skipulagssvið
Strandgötu 6
220 Hafnarfjörður

Ábendingagátt