Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 1. febrúar sl. að auglýsa nýtt deiliskipulag í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.

Nýtt deiliskipulag fyrir Hringhamar 27

Deiliskipulagið gerir ráð fyrir að á lóðinni verður heimilt að reisa tvö 5 hæða fjölbýlishús með 48 íbúðum ásamt bílakjallara og smáhýsi á lóð. Á hluta jarðhæðar byggingarinnar sem snýr að Hringhamri er heimilt að vera með verslun og/eða þjónustu sem fellur að íbúðabyggð.

Tillögurnar verða til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 6 og hjá umhverfis- og skipulagssviði Norðurhellu 2, frá 9.2.2023. Einnig er hægt að kynna sér tillögurnar hér að neðan.

Athugasemdir eða ábendingar skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 23.3.2023 á netfangið skipulag@hafnarfjordur.is eða stílaðar á:

Hafnarfjarðarbær
bt. umhverfis- og skipulagssvið
Strandgötu 6
220 Hafnarfjörður

Ábendingagátt