Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 21. desember að auglýsa í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 eftirfarandi skipulagsmál: 

Breyting á deiliskipulagi Selhrauns suður, vegna Suðurhellu 9

Breytingin felst í því að byggingarreitnum er snúið og hann færður til. Auk þess er gert ráð fyrir nýjum út-/innkeyrslum á lóðinni

——-

Tillögurnar eru til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 6 og hjá umhverfis- og skipulagssviði Norðurhellu 2, frá 29.12.  Einnig er hægt að skoða gögnin hér að neðan.

Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir á netfangið skipulag@hafnarfjordur.is eða skriflega í þjónustuver að Strandgötu 6 eigi síðar en 9.2.2023.

Ábendingagátt