Skipulagsbreyting – Einhella 6

Fréttir

Breytingin felst í því að byggingarreitur á lóð er fækkað úr tveimur í einn. Hámarks byggingarmagn verður 1500m² í stað 2600m². Tillögur eru til sýnis frá 22.06.2017 – 03.08.2017. 

Breyting á deiliskipulagi Einhellu 6, 2.
áfangi Hellnahrauni.

Skipulags-
og byggingarráð  Hafnarfjarðar samþykkti
á fundi sínum 21.02.2017 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðanna
að Einhellu 6 í samræmi við 1. mgr. 43 gr. 
skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin
felst í því að byggingarreitur á lóð er fækkað úr tveimur í einn. Hámarks
byggingarmagn verður 1500m² í stað 2600m². Gert er ráð fyrir athafnarsvæði á
hluta lóðarinnar. Að
öðru leiti er vísað í gildandi deiliskipulagsskilmála. Tillögurnar eru til
sýnis í Þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 6 og hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu
að Norðurhellu 2, frá 22.06.2017 – 03.08.2017. 

Einnig er hægt að sjá tillögurnar HÉR

Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera
athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað skriflega til Umhverfis- og
skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 3. ágúst 2017. Þeir sem
eigi gera athugasemdir við breytinguna innan tilskilins frests, teljast
samþykkir henni.

Nánari upplýsingar eru veittar hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu.  

Ábendingagátt