Skipulagsbreyting Eskivellir 11 og 13

Fréttir

Skipulags- og byggingarráð  Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 13.12.2016 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi við Eskivelli 11.  Tillögurnar verða til sýnis í Þjónustuveri Hafnarfjarðar og hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu Norðurhellu 2, frá 31.01 – 16.03.2017

Breyting á deiliskipulagi Eskivalla 11 og 13, Vellir 5.

Skipulags- og byggingarráð  Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 13.12.2016 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi við Eskivelli 11 í samræmi við 1. mgr. 43 gr.  skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í:

  • 5.4.1. Fjölbýlishús F1.  Við Eskivelli 11 verður eitt sex hæða fjölbýlishús (F1) með 39 íbúðum Byggingarreitur er í vinkli og verður nú 31,6m x 42,5m að utanmáli og 11,3m – 14,5m breiður, 708,5m². Bílageymsla neðanjarðar er felld út og bílastæðum komið fyrir á lóð.  Að öðru leiti gilda eldri skilmálar fyrir lóðina.
  • 5.4.2. Fjölbýlishús F2, Eskivellir 13.  Bílageymsla neðanjarðar er felld út og bílastæðum komið fyrir á lóð. Að öðru leiti gilda eldri skilmálar fyrir lóðina.

Tillögurnar verða til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 6 og hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu að Norðurhellu 2, frá 31.01.2017–16.03.2017. 

Einnig er hægt að skoða deiliskipulagstillöguna HÉR

Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað skriflega til Umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 16. mars 2017. Þeir sem eigi gera athugasemdir við breytinguna innan tilskilins frests, teljast samþykkir henni.

Nánari upplýsingar eru veittar hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu.

Ábendingagátt