Skipulagsbreyting – Hamarsbraut 5

Fréttir

Breyting á deiliskipulagi við Hamarsbraut 5, Hafnarfirði. Breytingin felst í að komið er fyrir tvíbýli á lóðinni. Ekki eru gerðar tillögur að öðrum skilmálabreytingum. Frestur til athugasemda er 5. maí 2017.

Breyting á deiliskipulagi við Hamarsbraut 5, Hafnarfirði. 

Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 07.02.2017 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi á lóð við Hamarsbraut 5 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og samhliða grenndarkynna tillöguna skv. 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.   

Breytingin felst í að komið er fyrir tvíbýli á lóðinni.

Ekki eru gerðar tillögur að öðrum skilmála breytingum.  Heimilt byggingarmagn á lóð verður áfram 204,8 m² (nhl. 0,45) og aðrir þættir en snúa að gerð hússins eins og kveður á um sk. gildandi skilmálum.  Bílastæði eru leyst innan lóðar.

Tillögurnar verða til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar að Strandgötu 6 og hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu að Norðurhellu 2, frá 24.03.2017 – 05.05.2017. 

Einnig er hægt að skoða deiliskipulagstillöguna HÉR

Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað skriflega til umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 5. maí 2017. Þeir sem eigi gera athugasemdir við breytinguna innan tilskilins frests, teljast samþykkir henni.

Nánari upplýsingar eru veittar hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu.  

Ábendingagátt