Skipulagsbreyting – Hverfisgata 4B og 6B

Fréttir

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi lóðanna Hverfisgötu 4B og 6B. Skipulagsbreytingin felst í breyttum lóðarmörkum lóðanna, þannig að lóð Hverfisgötu 4B minnkar og lóð Hverfisgötu 6B stækkar sem því nemur. Jafnframt minnkar byggingarreitur Hverfisgötu 4B. Frestur til athugasemda til 31.03.2017

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi lóðanna Hverfisgötu 4B og 6B, Hafnarfirði. 

Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 7. febrúar 2017 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðanna að Hverfisgötu 4B og 6B í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Um er að ræða breytingu deiliskipulags, sem samþykkt var 9.10. 2007.

Deiliskipulagsbreytingin felst í breyttum lóðarmörkum lóðanna, þannig að lóð Hverfisgötu 4B minnkar og lóð Hverfisgötu 6B stækkar sem því nemur. Jafnframt minnkar byggingarreitur Hverfisgötu 4B.

Tillagan verður til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 8-10 og hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu Norðurhellu 2, frá 17. 02. til 31. 03. 2017. 

Einnig er hægt að skoða tillöguna HÉR

Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað skriflega til umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 31. 03. 2017. Þeir sem eigi gera athugasemdir við breytinguna innan tilskilins frests, teljast samþykkir henni.

Nánari upplýsingar eru veittar á umhverfis- og skipulagsþjónustu.

Ábendingagátt