Skipulagsbreytingar
Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar þann 12 des. s.l. var samþykkt breyting aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 er varðar landnotkunarflokk H (hafnarsvæði) og deiliskipulag lóðarinnar að Fornubúðum 5. Athugasemdir bárust og hefur þeim sem gerðu athugasemdir verið send umsögn sveitarstjórnar.
Aðalskipulagsbreyting vegna landnotkunarflokks H (hafnarsvæði) og deiliskipulagsbreyting að Fornubúðum 5.
Á fundi Bæjarstjórnar Hafnarfjarðar þann 12 des. s.l. var samþykkt breyting aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 er varðar landnotkunarflokk H (hafnarsvæði) og deiliskipulag lóðarinnar að Fornubúðum 5.
Athugasemdir bárust og hefur þeim, sem gerðu athugasemdir verið send umsögn sveitarstjórnar. Breytingin verður birt í B- deild Stjórnartíðinda. Hægt er að kæra samþykkt sveitarstjórnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulagsbreytinganna í B-deild Stjórnartíðinda.