Skipulagsdagur í tónlistarskóla og leik- og grunnskólum 3. janúar

Fréttir

Miðað við hraða útbreiðslu Covid -19 og fjölgun smita í samfélaginu er viðbúið að röskun geti orðið á starfsemi leikskóla, grunnskóla, frístundaheimila, félagsmiðstöðva og tónlistarskóla á komandi dögum. Gera má ráð fyrir að loka þurfi deildum í leikskólum og fella niður kennslu í einstökum árgöngum eða stærri hópum í grunnskólum, um skemmri eða lengri tíma. Stjórnendur munu að öllu jöfnu reyna að leysa forföll eins og hægt er.

Miðað
við hraða útbreiðslu Covid -19 og fjölgun smita í samfélaginu er viðbúið að
röskun geti orðið á starfsemi leikskóla, grunnskóla, frístundaheimila,
félagsmiðstöðva og tónlistarskóla á komandi dögum. Gera má ráð fyrir að loka
þurfi deildum í leikskólum og fella niður kennslu í einstökum árgöngum eða
stærri hópum í grunnskólum, um skemmri eða lengri tíma. Stjórnendur munu að
öllu jöfnu reyna að leysa forföll eins og hægt er.

Mánudagurinn 3. janúar verður
skipulagsdagur í starfsemi grunn- og leikskóla, í frístundastarfi og í
tónlistarskólum til að gefa starfsfólki tækifæri til að laga starfsemina að
aðstæðum í samfélaginu og gildandi reglugerð.

Þessi síðasta bylgja faraldursins
hefur haft mikil áhrif og eru stjórnendur og starfsfólk að gera allt til að
röskun sé sem minnst. Til þess að styðja
við þá viðleitni þurfa foreldar og forráðamenn að huga vel að persónubundnum
sóttvörnum, börn eiga ekki að mæta í skóla með kvef einkenni, verði þeirra vart
þarf að fara í PCR próf.

Fyrirfram þakkir fyrir sýndan skilning! 

Ábendingagátt