Skoðaðu Hafnarfjörð á vefnum Út um allt

Fréttir

Fjórtán útivistarsvæði hér í Hafnarfirði eru nefnd á vefnum Úti um allt sem fagnar ársafmæli um þessar mundir. Þar má sjá hinar ýmsu gönguleiðir, vegalengd þeirra og erfiðleikastig. Njótum.

Komdu út að leika!

Fjórtán útivistarsvæði hér í Hafnarfirði eru nefnd á vefnum Úti um allt sem fagnar ársafmæli um þessar mundir. Þar má sjá hinar ýmsu gönguleiðir, vegalengd þeirra og erfiðleikastig. Tökum dæmi:

Hjarta Hafnarfjarðar

  • Gönguleið 4.71 km
  • Erfiðleiki: Fyrir alla

Umverfis Helgafell í Hafnarfirði

  • Gönguleið: 8.34 km
  • Erfiðleiki: Þrep 2

Hvaleyrarvatn

  • Gönguleið: 1.96 km
  • Erfiðleiki: Þrep 1

Þar má einnig finna hjólaleiðir. Dæmi:

Álfahringur í Hafnarfirði

  • Hjólaleið: 6.14 km
  • Erfiðleiki: Þrep 1

Víðistaðatún, Hamarinn og Hellisgerði eru meðal útivistarsvæða sem nefnd eru hér í Hafnarfirði. Sjáðu hér.

Allt um Út um allt

Já, Útivistarvefur höfuðborgarsvæðisins, Út um allt, fagnar nú því að ár er liðið frá því honum var hleypt af stokkunum í febrúar 2025. Markmið hans er að safna á einum stað upplýsingum um gönguleiðir, hjólaleiðir og útivistarsvæði á höfuðborgarsvæðinu, bæði á íslensku og ensku.

Við opnun voru 30 göngu- og hjólaleiðir á vefnum, en þær eru nú 64 talsins og ná yfir allt höfuðborgarsvæðið. Hverri leið fylgja gagnlegar upplýsingar, svo sem um erfiðleikastig, lengd og áætlaðan göngu- eða hjólatíma, auk þess sem notendur geta séð eigin staðsetningu á korti og fylgt leiðinni í rauntíma.

Á vefnum er öflug leitarvél þar sem hægt er að sía eftir sveitarfélagi, aðstöðu, þjónustu og aðgengi. Einnig er að finna á vefnum lýsingar á 36 útivistarsvæðum, staðsetningu þeirra og möguleikum. Stefnt er að aukinni þróun og kynningu á vefnum á árinu 2026.

Gerð vefsins var eitt áhersluverkefna sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins og styður við markmið hennar um heilnæmt umhverfi og heilbrigðan lífsstíl. Með Út um allt er ætlunin að gera útivistarmöguleika svæðisins sýnilegri og hvetja þannig til aukinnar hreyfingar, ánægju íbúa og betri nýtingar á grænum svæðum.

Vefurinn er samstarfsverkefni Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins.

Já, hér eru svo sannarlega tækifæri til að kynnast Hafnarfirði á nýjan máta!

Ábendingagátt