Skóflustunga að hlutdeildarlánaíbúðum í Hafnarfirði
Skóflustunga hefur verið tekin að nýju uppbyggingarverkefni við Hjallahraun í Hafnarfirði með fjölda íbúða fyrir fyrstu kaupendur sem fá hlutdeildarlán. Byggðar verða 390 íbúðir hið minnsta.
Yfir 390 íbúðir rísa við Hjallahraun
Skóflustunga hefur verið tekin að nýju uppbyggingarverkefni við Hjallahraun í Hafnarfirði með fjölda íbúða fyrir fyrstu kaupendur sem fá hlutdeildarlán. Byggðar verða 390 íbúðir hið minnsta – þar af þriðjungur fyrir fyrstu kaupendur í gegnum hlutdeildarlán.
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, Pálmar Harðarson, framkvæmdastjóri Þingvangs, Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar og Kristín Hrönn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka, tóku skóflustunguna síðdegis í gær.
Bæjarstjóri fagnar uppbyggingunni
„Við fögnum þessari uppbyggingu,“ segir Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnafjarðar.
„Við höfum lagt áherslu á það frá upphafi að hér verði fjölbreyttar íbúðir sem henta öllum í samfélaginu. Það er gleðilegt að sjá gott samstarf á milli byggingarverktakanna og ríkisstjórnarinnar í þessu verkefni. Bæjarfélagið hefur átt í góðu samstarfi við Þingvang og sýnt sveigjanleika þegar kemur að skipulagsskilmálum. Ekki hefur verið slegið slöku við í íbúðauppbyggingu hér í Hafnarfjarðarbæ síðustu ár og við ætlum að axla þá ábyrgð áfram.“
Í fyrsta áfanga verkefnisins verða byggðar 177 íbúðir – þar af 60 íbúðir hið minnsta fyrir þau sem uppfylla skilyrði hlutdeildarlána.
Hlutdeildarlán eru lán sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun veitir þeim sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð eða hafa ekki átt íbúðarhúsnæði síðastliðin fimm ár og eru undir tilteknum tekjumörkum.
Verkefnið endurreist og ýtt úr vör
Þingvangur hafði áður undirbúið uppbyggingu á íbúðum í Hjallahrauni en hætti við verkefnið um mitt ár 2024 vegna hárra vaxta og óvissu um sölu. Nú hefur Þingvangur endurhannað fyrsta áfanga verkefnisins svo að a.m.k. 60 íbúðir passi inn í ramma hlutdeildarlána. Íbúðunum hefur því fjölgað og meðalstærð þeirra minnkað frá fyrri hönnun.
Samkvæmt viljayfirlýsingu sem undirrituð var samhliða skóflustungunni er samstarfið á milli stjórnvalda og byggingaraðila grundvöllur þess að hægt sé að fara af stað með þetta stóra uppbyggingarverkefni á höfuðborgarsvæðinu og auka framboð íbúða verulega, þar með talið íbúða innan hlutdeildarlánakerfisins.
Ráðherra segir hlutdeildarlánin breyta stöðunni
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir breytingarnar sem við gerðum nýverið á hlutdeildarlánakerfinu gjörbreyta stöðunni.
„Með því að ríki, sveitarfélög og uppbyggingaraðilar gangi sameinuð til verks rjúfum við kyrrstöðuna og tryggjum framboð á íbúðum sem henta fyrstu kaupendum og falla inn í hlutdeildarlánakerfið. Uppbyggingaraðilar geta þá byggt sérstaklega inn í kerfið sem áður var ekki mögulegt. Ég fagna þessu gríðarstóra uppbyggingarverkefni sem nú er hafið og hlakka til að sjá önnur sambærileg fara af stað.“
Pálmar Harðarson, framkvæmdastjóri Þingvangs, segir fyrirtækið hafa beðið lengi eftir að geta hafið þessa uppbyggingu. „Núna er það mögulegt þegar félags- og húsnæðismálaráðherra leggst á vogarskálarnar með okkur ásamt Hafnarfjarðarbæ, fjárfestum og Íslandsbanka. Ég vil þakka þeim sérstaklega fyrir að leggja sitt af mörkum svo hægt sé að koma verkefninu af stað,“ segir hann.
„Þetta er í fyrsta sinn sem komin er einhver mynd af forsölusamningi fyrir okkur uppbyggingaraðilana til að geta akkerað verkefnin í upphafi og hannað íbúðirnar sérstaklega fyrir hlutdeildarlánin og líka fyrir almenna markaðinn því við viljum gera allar gerðir íbúða fyrir öll.“
- Fréttin er byggð á texta frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Sjá frétt hér.
Myndatexti: Skóflustungan tekin í Hafnarfirði nú síðdegis. Frá vinstri: Pálmar Harðarson, framkvæmdastjóri Þingvangs, Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, og Kristín Hrönn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka. Meginmynd/Sigurjón Ragnarsson