Skólaslit 2019-2020 og skólasetning 2020-2021
Skólaslit hafa farið fram í öllum grunnskólum Hafnarfjarðar sem jafnframt útskrifa samtals 406 nemendur úr 10. bekk í Hafnarfirði þetta árið. Skólasetning fyrir skólaárið 2020-2021 verður 25. ágúst.
Skólaslit
hafa farið fram í öllum grunnskólum Hafnarfjarðar sem jafnframt útskrifa
samtals 406 nemendur úr 10. bekk í Hafnarfirði þetta árið. Hátíðleg stemming var yfir
útskriftum skólanna þar sem útskriftarnemendur kvöddu skólann sinn, samnemendur
og kennara full eftirvæntingar eftir því sem framtíðin mun bera í skaut sér.
Við óskum þessum glæsilega hópi ungmenna velgengni í framtíðinni.
Skólasetning
fyrir skólaárið 2020 – 2021 verður 25. ágúst 2020.