Skólastarf í Áslandsskóla vegna boðaðra verkfalla
Kennarasamband Íslands, fyrir hönd Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands, boðar til vinnustöðvunar (verkfalls) félagsmanna sem starfa í Áslandsskóla. Vinnustöðvunin nær ekki til annarra grunnskóla eða leikskóla í Hafnarfirði.
Vinnustöðvunin tekur aðeins til Áslandsskóla
Kennarasamband Íslands, fyrir hönd Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands, boðar til vinnustöðvunar (verkfalls) félagsmanna sem starfa í Áslandsskóla. Vinnustöðvunin tekur aðeins til grunnskólans Áslandsskóla en ekki til annarra grunnskóla eða leikskóla í Hafnarfirði.
Vinnustöðvunin er tímabundin, hefst þriðjudaginn 29. október kl. 00:01 og lýkur föstudaginn 22. nóvember kl. 23:59 ef samningar nást ekki. Enginn má ganga í störf þessa starfsfólks nema skólastjóri og aðstoðarskólastjóri. Verði verkfalli aflýst verður skólastarf með óbreyttum hætti.
Skipulag skólastarfsins í Áslandsskóla komi til verkfalls
- Ekkert skólastarf frá og með þriðjudeginum 29. október
- Frístundaheimili verður opið á hefðbundnum opnunartíma, frá kl. 13-16.30 alla daga utan miðvikudaga, frá 14-16.30
- Félagsmiðstöðvar verða opnar í takti við auglýstan opnunartíma
Foreldrar og forsjáraðilar eru hvattir til að fylgjast vel með gangi mála í fjölmiðlum og á vef Kennarasambands Íslands.