Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
<<English below>> School activities as of 4 May. Mánudaginn 4. maí nk. hefst skólastarf í grunnskólum Hafnarfjarðar samkvæmt stundatöflunni sem gilti áður en skólastarf var skert í samkomubanni. Stundataflan nær líka til íþrótta- og sundkennslu sem mögulega getur samt eitthvað breyst í einstaka skólum og tekin upp útikennsla út líkt og gjarnan gerist á vorin.
Mánudaginn 4. maí nk. hefst skólastarf í grunnskólum Hafnarfjarðar samkvæmt stundatöflunni sem gilti áður en skólastarf var skert í samkomubanni. Stundataflan nær líka til íþrótta- og sundkennslu sem mögulega getur samt eitthvað breyst í einstaka skólum og tekin upp útikennsla út líkt og gjarnan gerist á vorin.
Það sem gerist á mánudaginn….
Mæting í skóla er í þriðju kennslustund mánudaginn 4. maí en í upphafi mánudags hefur starfsfólk möguleika til funda og skipulags. Unnið verður eftir þekktri stundatöflu til vors og skólaslit munu fara fram út frá samþykktu skóladagatali. Meðal annars er sameiginlegur skipulagsdagur 29. maí. Frímínútur verða með hefðbundnu sniði. Frístundaheimili taka til starfa eftir viðveruskráningum þar frá því fyrir samkomubann og frístundaakstur hefst á ný. Starf félagsmiðstöðva fer í eðlilegt horf og kennsla kennara Tónlistarskóla Hafnarfjarðar í grunnskólunum sömuleiðis. Námsmat mun fara fram samkvæmt venju en hver skóli útfærir það á sinn hátt og beðið er skýrari fyrirmæla stjórnvalda um útskrift 10. bekkinga og innritun í framhaldsskóla.
Ljóst er að það verður að raða verkefnum í forgangsröð í maí þar sem hefðbundið skólastarf hefur ekki verið frá 16. mars sl. Það felur í sér að ekki verður mögulegt að sinna öllum hefðbundnum verkefnum í maímánuði eða þeim sem misst hefur verið af. Skólastjórnendur hafa komið sér saman um skipulag að vinna eftir til vors út frá sömu þáttum í öllum skólum. Þannig munu foreldraskemmtanir og útihátíðir með foreldrum ekki verða í vor þótt slíkt verði mögulegt með nemendum. Árshátíðir nemenda falla niður en skoðað verður með aðrar skemmtanir undir lok skólaársins. Ferðalög verða í styttri kantinum og útskriftarsamkomur þarf að minnka til að of margir fullorðnir verði ekki staddir á sama stað á sama tíma. Við biðjum foreldra að virða tveggja metra nálægðarregluna og koma ekki inn í skólahúsnæðið af tilefnislausu til vors heldur notast við rafræn samskipti eftir því sem við á.
Matsalir grunnskólanna verða opnaðir aftur frá 4. maí og nemendur geta einnig komið með eigið nesti á ný. Þannig mun á ný verða veittur hafragrautur að morgni, ávaxtaáskrift er um miðjan morgun, hádegismatur framreiddur í skólamötuneyti og loks síðdegishressing í frístundaheimili eins og áður. Þó hefur verið ákveðið að halda ekki sjálfsskömmtun á mat í hádegi í neinum skóla en nemendur munu áfram skammta sér sjálfir grænmeti með matnum. Mánudaginn 4. maí hefst afhending á mat sem átti að afhenda þann 16. mars hjá þeim sem voru í áskrift fyrir mars. Skólamatur mun senda fljótlega út greiðsluinnheimtuseðla til áskrifenda vegna þess tíma sem eftir verður af skólaárinu, þ.e. frá um miðjum maí og fram til loka skólaársins. Áfram verður lögð áhersla á sóttvarnir í skólanum þótt sóttvarnarhólf leggist af þann 4. maí og treyst verður áfram á samvinnu og samstöðu allra um að þvo sér vel og spritta hendur.
Þess ber að geta að reglur um skólasókn í grunnskólum Hafnarfjarðar taka aftur gildi 4. maí eftir að hafa verið settar í bið meðan á samkomubannstímanum stóð. Það er mikilvægt að mæta í skólann og ætlast er til af skólunum að fylgja fast eftir að nemendur sæki skóla og styðji þá nemendur sem kvíða endurkomu í daglegt skólastarf. Hefðbundin skólaþjónusta hefst á ný, t.d. teymisvinna vegna einstakra nemenda, greiningar og ráðgjöf sálfræðinga, talmeinafræðinga og kennsluráðgjafa og önnur skólaþjónusta eins og við á.
Með þessum breytingum sem nú taka gildi skiptir miklu að allir taka virkan þátt í að viðhalda þeim árangri sem hefur náðst í að stöðva kórónuveirufaraldurinn. Við þökkum ykkur jákvæðni gagnvart þeim takmörkunum sem þurfti að setja á skólastarfið í mars og vonumst nú til að þessi breyting yfir í eðlilegt skólastarf komi til með að vera.
————————————————–
In English
School activities as of 4 May
On Monday, 4 May, schoolwork will resume in the primary schools of Hafnarfjörður according to the schedule as it was before schoolwork was restricted during the ban on public gatherings. This will also include sports and swimming lessons, although these may change slightly in some schools, and there will be outdoor lessons as is usual in the spring.
The first lessons will start during the third period, as teachers will be using the early morning for meetings and organising the work to come. The plan is to work according to the issued schedule for the spring and that the end of school will be according to the approved school calendar. This also means that the joint staff planning day will be held on 29 May. Break times between classes will be as normal. After-school centres will operate according to their attendance registrations as current before the ban on gatherings, and the after-school activities bus will resume services. The work of community centres will return to normal, as will the lessons of the teachers of the Hafnarfjörður Music School in primary schools. Academic assessments will take place as usual and will be arranged independently by each school. Clearer instructions from the authorities as regards the graduation of grade 10 students and their acceptance into secondary schools is awaited.
It is clear that tasks need to be prioritise during the month of May, as no normal schoolwork has been carried out since 16 March. This means that we will be unable to undertake all normal tasks in May or those that we have missed. Primary school principals have agreed on arrangements to take account of until spring based on the same aspects for all schools. Thus, parent-attended events and outdoor festivals with parents will not be taking place this spring, although these would be possible with just students. The annual student celebrations will be cancelled, while other events will be taken into consideration nearer the close of the school year. Trips will be shorter, and graduation celebrations will have to be down-sized to ensure that there are not too many adults present in the same place at the same time. We request that parents comply with the two-metre distance rule and do not enter the school buildings without reason until spring and recommend that they use electronic means of communication as appropriate.
Likewise, school cafeterias will reopen on 4 May and students can also bring their own lunch boxes. In addition, porridge will again be available in the morning, fruit subscription mid-morning, lunch prepared in the student canteen and finally, an afternoon snack in after-school centres as before. Meals at lunch, however, will not be self-service in any school, although students will still have the option of self-service as regards vegetable accompaniments. On Monday, 4 May, the delivery of food will begin according to the menu that would have been used on 16 March for those who had a subscription for March. Skólamatur will soon send payment invoices to subscribers for the time left of the school year, i.e. from the middle of May to the end of the school year. The schools will continue to pay attention to infection prevention, although quarantine units will be discontinued as of 4 May, and we will continue to rely on the co-operation and solidarity of all to wash hands properly and then disinfect.
In addition, it should be noted that rules on attendance in Hafnarfjörður primary schools will come back into effect on 4 May after having been put on hold during the ban on gatherings. It is important to attend school, and the school is expected to make sure that students attend school and to support the students that are anxious about returning to daily schoolwork. Normal school services, such as team-based approaches as regards individual students, diagnoses and the services of psychologists, speech therapists and special education consultants, etc., will also be resumed as appropriate.
With the changes now coming into effect, it is important that everyone take an active part in maintaining the results that have been achieved in halting the coronavirus pandemic. We thank you for your understanding and positive outlook as regards the limits that needed to be set in March and hope that the return to normal school operations will continue in the future.
Fuglaflensa hefur greinst á höfuðborgarsvæðinu. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélagsins hefur samið við Dýraþjónustu Reykjavíkur um að fjarlæga dauða fugla. Meindýraeyðar þurfa staðsetningu…
Drög að nýrri umhverfis- og auðlindastefnu fyrir Hafnarfjörð liggja fyrir. Kallað er eftir þátttöku íbúa í rýni á drögum og…
Ákveðið hefur verið að setja upp tvo nýja ærslabelgi í Hafnarfirði á árinu 2025 á völdum opnum svæðum í bænum…
Alls voru 524 nýjar íbúðir fullbúnar í Hafnarfirði í fyrra. Þær bættust í hóp 11 þúsund íbúða í bæjarfélaginu. Nýjum…
FH, Hafnarfjarðarbær og Íþróttabandalag Hafnarfjarðar (ÍBH) hafa tekið höndum saman og bjóða frá 15. janúar fótboltaæfingar fyrir börn í 1.-10.…
Tafir hafa orðið á sorphirðu nú á nýju ári. Ljóst er að tunnurnar verða tæmdar viku á eftir áætlun. Unnið…
Algjörar skvísur verður sú fimmtánda í haustsýningarröð Hafnarborgar. Verkefnið hefur það að markmiði að gefa breiðu sviði sýningarstjóra kost á…
Alls sátu 100 foreldrar PMTO-foreldrafærninámskeið hjá Hafnarfjarðarbæ í fyrra. Foreldrarnir fá kennslu og eru þjálfaðir í styðjandi leiðum í uppeldishlutverki…
Nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Valdimar Víðisson, er með opna viðtalstíma alla þriðjudaga frá kl. 9:30 – 11:30. Viðtalstímar eru bókaðir í…
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um styrki úr húsverndarsjóði Hafnarfjarðar. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi eldri húsa…