Hefðbundið skólastarf í grunnskólum eftir páska

Fréttir

Ný reglugerð um skólahald grunnskóla var gefin út rétt fyrir páskafrí sem gilda mun fram til 15. apríl. Grunnskólastarf mun hefjast á þriðjudegi eftir páska líkt og í hefðbundnu skólaári. Kennsla hefst þó ekki fyrr en í þriðju kennslustund eða kl. 10 þann dag.

Skólastarf í grunnskólum Hafnarfjarðar eftir páska til 15. apríl

Ný reglugerð um skólahald grunnskóla var gefin út rétt fyrir páskafrí sem gilda mun fram til 15. apríl. Grunnskólastarf mun hefjast á þriðjudegi eftir páska líkt og í hefðbundnu skólaári. Kennsla hefst þó
ekki fyrr en í þriðju kennslustund eða kl. 10 þann dag. Skólastarf er með
hefðbundnu sniði, þ.e. full kennsla í öllum námsgreinum skv. stundaskrá. Þó er
beðið eftir að fá samþykki á því að opna megi sundlaugar fyrir
grunnskólakennslu þótt þær séu lokaðar að öðru leyti og verður staðfest eftir
páska. Engin grímuskylda er hjá nemendum þótt slíkt gildi fyrir starfsfólk í
sameiginlegum rýmum og ef nánd við nemendur er minni en 2m við
kennslu/samskipti. 

Sjá tilkynningu á vef Stjórnarráðsins

Tónlistarkennsla fer fram í grunnskólum líkt og áður og
starfsfólk skólaþjónustu má fara í grunnskóla en foreldrum og öðrum gestum er
óheimilt að koma í skólana á fundi, með fræðslu eða á viðburði. Starfsemi
frístundaheimila er óbreytt en mögulega þarf í einhverjum tilvikum að takmarka
stærð hópa svo þeir verði aldrei með fleiri en 50 börn sem reglugerðin miðar
við sem hámarksfjölda nemenda saman í kennslu eða viðburðum innan skóla, utan
sameiginlegra rýma eins og matsals og ganga. Matarþjónusta verður óbreytt miðað
við hefðbundna framkvæmd og hefst því með morgunávöxtum á þriðjudeginum í
samræmi við áskriftir nemenda.

Varðandi leyfi fyrir nemendur, hvort heldur vegna veikinda
eða annarra ástæðna, gilda sömu reglur og áður og engar sérstakar undanþágur
eru í gildi vegna sóttvarnaáherslna.

Ábendingagátt