Skóli í Skarðshlíð verksamningur

Fréttir

Hafnarfjarðarbær
og Eykt skrifuðu á dögunum undir samning um hönnun og byggingu á nýjum skóla í
Skarðshlíð

Hafnarfjarðarbær og Eykt
skrifuðu á dögunum undir samning um hönnun og byggingu á nýjum skóla í
Skarðshlíð, verk sem auglýst var í alútboði á vormánuðum. Skólinn samanstendur
af húsnæði fyrir 2ja hliðstæðu grunnskóla um 6.800 m2,
tónlistarskóla um 480 m2, leikskóla um 760 m2 og
íþróttahús um 870 m2, samtals um 8.910 m2. Eykt mun hefja
framkvæmdir við skólann nú í ágúst og mun uppbygging eiga sér stað í þremur
áföngum. Fullnaðarverklok eru 15.júní 2020 og er samningsfjárhæðin í heild kr.
3.979.077.263.-

Fyrsta áfanga
uppbyggingar á að vera lokið 6. júlí 2018 og mun þá grunnskóli í Skarðshlíð
flytja í húsnæðið eða nemendur í 1-4.bekk sem hefja skólagöngu sína í
safnaðarheimili Ástjarnarsóknar nú haustið 2017. 15. júní 2019 á húsnæði fyrir
leikskóla að vera fullbúið og áframhaldandi uppbygging húsnæðis fyrir
grunnskóla. Þann 15.júní 2020 á húsnæðið að vera fullbyggt og þar með talið
grunnskóli, tónlistarskóli og íþróttahús við skólann.

Byggingarnar
verða hannaðar samkvæmt hugmyndafræði algildrar hönnunar. Í því felst að hanna
góðar lausnir með jafnrétti og vellíðan alls fólks í fyrirrúmi.

Ábendingagátt