Skráning á sumarnámskeið 2019

Fréttir

Opið er fyrir skráningu á sumarnámskeið fyrir 7-9 ára sem standa yfir frá 11. júní – 5 júlí. Skráning þarf að fara fram fyrir miðnætti á fimmtudögum eigi barn að byrja á mánudeginum á eftir. Skráning fer fram á MÍNUM SÍÐUM

Á sumrin eru leikjanámskeið starfrækt í öllum frístundaheimilum í Hafnarfirði. Innifalið í námskeiðum er fjölbreytt skemmtun s.s. leikir, göngu- og hjólaferðir og margt fleira. Námskeiðin eru ætluð börnum 7-9 ára en dagana 9. – 21. ágúst verður í boði leikjanámskeið fyrir 6 ára.  Opnað hefur verið fyrir skráningu og þarf skráning að fara fram fyrir miðnætti á fimmtudögum eigi barn að byrja á mánudeginum á eftir. 

Skráning fer í öllum tilfellum fram í gegnum MÍNAR SÍÐUR – skráning á sumarnámskeið 2017. Á MÍNUM SÍÐUM er aðeins hægt að greiða með kreditkorti og debetkorti en hægt er að staðgreiða skráningu í Þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6. 

Sumarnámskeið hefjast 11. júní

Fyrstu námskeiðin hefjast þriðjudaginn 11. júní og standa flest yfir til 5. júlí. Námskeiðin eru fyrir börn fædd 2010-2012 (7-9 ára) og standa frá kl. 9-12 og kl. 13-16. Ókeypis gæsla er á milli kl. 8 -9, 12-13 og 16-17. Þátttökugjaldi er stillt í hóf og veittur 50% systkinaafsláttur. Minnst er hægt að greiða fyrir viku í senn.

  • Hver vika (hálfur dagur frá kl. 9 – 12 eða 13 – 16): 4.450.- kr.
  • Hver vika (allur dagurinn frá kl. 9 – 16): 8.900.- kr.

Frá 8.-26. júlí verður íþrótta- og leikjanámskeið í Íþróttahúsinu í Setbergsskóla. Frá 7. til 21. ágúst verða svo íþrótta- og leikjanámskeið á tveimur stöðum:

  1. Í Hraunvallaskóla sem sér um Hvaleyrarskóla, Áslandsskóla og Skarðshlíðarskóla.
  2. Í Lækjarskóla sem sér um Öldutúnsskóla, Setbergsskóla og Víðistaðaskóla.

Leikjanámskeið fyrir útskriftarhópa leikskólanna

Frá 9.-21. ágúst er boðið uppá fjölbreytt og uppbyggilegt leikjanámskeið fyrir 6 ára útskriftarhópa leikskólanna í öllum frístundaheimilum. Skráning á námskeið hefst hér einnig á Sumardaginn fyrsta, 25. apríl 2019.

Ábendingagátt