Skráning í fjölþætta heilsueflingu 65 ára og eldri er hafin
Fjölþætt heilsuefling er verkefni á vegum Hafnarfjarðarbæjar og Janusar heilsueflingar. Verkefnið er fyrir einstaklinga 65 ára eða eldri sem eru með lögheimili í Hafnarfirði. Verkefnið hefur verið í gangi síðan í febrúar 2019 og hefur gengið mjög vel með hressum og skemmtilegum þátttakendum í Hafnarfirði. Nú er fleiri 65+ ára boðin þátttaka!
Leið að farsælum efri árum – nýtt verkefni hefst 28. febrúar 2022
Fjölþætt heilsuefling er verkefni á vegum Hafnarfjarðarbæjar og Janusar heilsueflingar. Verkefnið er fyrir einstaklinga 65 ára eða eldri sem eru með lögheimili í Hafnarfirði. Verkefnið hefur verið í gangi síðan í febrúar 2019 og hefur gengið mjög vel með hressum og skemmtilegum þátttakendum í Hafnarfirði. Nú geta fleiri 65 ára og eldri skráð sig til leiks.

Bæting á afkastagetu og hreyfifærni þrátt fyrir hækkandi aldur
Lagt er upp með markvissa þol- og styrktarþjálfun, reglubundnar heilsufarsmælingar, fræðslu og ráðgjöf um holla næringu og aðra heilsueflandi þætti. Markmið með þátttöku í verkefninu er að bæta afkastagetu og hreyfifærni þrátt fyrir hækkandi aldur. Einnig er markmiðið að gera einstaklinginn hæfari til að hægja á öldrunareinkennum með markvissri þjálfun svo hann geti meðal annars sinnt athöfnum daglegs lífs lengur og búið lengur í sjálfstæðri búsetu.
Samhliða þátttöku í þessu heilsueflingarverkefni er verið að óska eftir þátttakendum í vísindarannsókn á heilbrigðissviði. Dr. Janus Guðlaugsson PhD-íþrótta- og heilsufræðingur er ábyrgðarmaður rannsóknar og verkefnis.

Fjölþætt heilsuefling 65+ í Hafnarfirði inniheldur meðal annars:
- Styrktarþjálfun 2x í viku með leiðsögn þjálfara
- Þolþjálfun 1x í viku með leiðsögn þjálfara
- Reglulegir fyrirlestrar á sviði heilsu og velferðar frá sérfræðingum
- Ítarleg heilsufarsmæling á 6 mánaða fresti hjá Janusi heilsueflingu
- Rafrænir heilsupistlar og annar fróðleikur um heilsutengdan lífsstíl
- Aðgangur að lokuðum Facebook hópi með upplýsingum og fróðleik
- Aðgangur að heilsu-appi Janusar heilsueflingar og þjálfunaráætlanir til lengri tíma
Umsókn um þátttöku
Allir 65 ára eða eldri geta sótt um þátttöku á https://www.janusheilsuefling.is/skraning/
Haft verður samband við skráða þátttakendur. Verkefnið hefst 28. febrúar 2022.