Sumarstarf – fristund.is

Fréttir

Skráning í sumarstarf á vegum Hafnarfjarðarbæjar er hafin! Skráningin fer fram á Mínum síðum undir umsóknir í grunnskóla.  Á fristund.is er hægt að skoða framboð á íþrótta- og tómstundastarfi eftir aldri, tímabilum og áhugasviði.

Skráning í sumarstarf á vegum Hafnarfjarðarbæjar er hafin! Skráningin fer fram á Mínum síðum – “leikjanámskeið, skólagarðar og róló“ undir umsóknir í grunnskóla. 

Á vegum Hafnarfjarðarbæjar er boðið uppá leikjanámskeið fyrir 7 – 9 ára við alla skóla, skólagarða fyrir alla fjölskylduna í Mosahlíð, á Holtinu, Öldugötu, við Víðistaði og á Völlum, tómstund fyrir 10-13 ára og skemmtilegar og skapandi sumarlistasmiðjur í Hafnarborg. Í júlí verður svo starfræktur róluvöllur á Bjarma. Á Bókasafni Hafnarfjarðar verður boðið upp á sumarlestur frá 1. júní til 31. ágúst 2016. Allir krakkar sem farnir eru að lesa sjálfir geta komið við á bókasafninu til að skrá sig og fengið afhenta lestrardagbók.

Þá má ekki gleyma leikjanámskeiðum fyrir útskriftarhópa leikskólanna í ágúst þar sem væntanlegir grunnskólanemendur fá að kynnast frístundaheimilinu sínu og nýja skólanum. 14-16 ára fá vinnu við Vinnuskóla Hafnarfjarðar og 16-20 ára ungmenni með fötlun fá atvinnutengd sumarúrræði.

Athugið að skráning í sumarstarf þarf að fara fram fyrir miðnætti á
fimmtudegi eigi barn að byrja á mánudegi.

Það verður fjölbreytt dagskrá í boði í sumar fyrir unga fólkið okkar.

Ábendingagátt