Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Kirkjugarðar Hafnarfjarðar fengu heiðursskjöld Snyrtileikans 2019 sem afhentur var við hátíðlega athöfn í Gróðrarstöðinni Þöll. Sex eigendur sérbýlishúsa fengu viðurkenningar fyrir fallega og vel hirta garða auk þess sem fjölbýlishúsalóðin við Skipalón fékk sérstaka viðurkenningu fyrir snyrtilega aðkomu og aðstöðu fyrir gesti, fallegan gróður og leiksvæði sem tengist vel inn á dvalarsvæðið.
Fjöldi ábendinga bárust frá bæjarbúum þegar Hafnarfjarðarbær leitaði, um mitt sumar, til íbúa eftir tilnefningum til viðurkenninga fyrir fallega og vel hirta garða, götur, opin svæði eða stofnanalóðir í Hafnarfirði en val til viðurkenninga byggir eingöngu á innsendum tillögum. Hátt í 20 ábendingar bárust og voru átta viðurkenningar veittar fyrir fallega og snyrtilega garða með fjölbreytni í gróðri, góða hirðingu og metnað í garðyrkjustörfum. Með viðurkenningunum vill Hafnarfjarðarbær vekja áhuga almennings á fegrun umhverfis innan bæjarmarkanna og beina athyglinni að þeim sem til fyrirmyndar teljast og ættu að vera öðrum hvatning til framkvæmda. Mikilvægt er að íbúar sem og fyrirtæki séu hvött áfram og verðlaunuð fyrir góða umgengni og snyrtilegt umhverfi.
Kirkjugarðar Hafnarfjarðar hlutu heiðursskjöldinn 2019 fyrir afar fallegan og snyrtilegan garð sem er bænum til mikils sóma. Í áranna rás hefur kirkjugarður Hafnarfjarðar þótt sérstaklega snyrtilegur og fallegur. Mikill metnaður er lagður í hönnun og útfærslu mismunandi svæða og eru öll rými sérstaklega vel útfærð og í góðu samtali við húsbyggingar og einnig þá starfsemi sem garðurinn á að þjóna. Gönguleiðir eru snyrtilegar og upplýstar sem gera aðstöðuna til að sinna leiðum ástvina mjög góða. Frágangur opinna svæða í kirkjugarðinum hefur ávallt verið til mikillar fyrirmyndar og ekki síst um jólin þar sem Hafnarfjarðarkirkjugarður spilar stórt hlutverk í því að setja ákveðinn hátíðarblæ á bæinn með fallegum ljósum á leiðum garðsins. Kirkjugarðar Hafnarfjarðar þykja til mikils sóma og fengu því heiðursskjöld Snyrtileikans 2019
Fallegustu og snyrtilegustu garðarnir í Hafnarfirði 2019 eru eftirfarandi og látum við hér fylgja með þá umsögn sem rituð var um hvern garð fyrir sig.
Fjóluhvammur 3
Þessi er garður hefur verið fallegur um árabil. Greinilega gott viðhald og mikið af fallegum og stæðilegum plöntum. Aðkoma að húsi tekur á móti gestum og gangandi. Fallegt og skjólsælt dvalarsvæði við hús. Þessi garður hefur afgerandi hlutverk í fallegri götumynd Fjóluhvamms.
Garðavegur 6b
Hér er um sannkallaðan verðlaunagarð að ræða, nostrað hefur verið við hvert smáatriði og mikil ást og umhyggja lögð í garðinn. Garðurinn er lítill en öllu er haganlega fyrir komið og hver hlutur á sinn stað. Aðkoma að húsi, ásamt húsinu sjálfu, er smekkleg og snyrtileg.
Heiðvangur 18
Mjög fallegur garður þar greinilegt er að mikill áhugi á garðrækt er til staðar. Fjölbreytt úrval plantna og rósa með fallegu samspili palla, hellulagðra flata og grass. Lítil tjörn með vatnaliljum og stendur þar garðskáli. Hvert sem litið er, er fjölbreytni mikil og öll rými vel úthugsuð.
Hrauntunga 14
Hér er greinilega mikill garðyrkjuáhugi á ferð. Mikil fjölbreytni í gróðri og allt viðhald garðsins til fyrirmyndar. Alls staðar er búið að nostra við hvert smáatriði og sérstaklega gaman er sjá hversu útsjónarsamir eigendur hafa verið og byggt hús uppá gömlum trjástofni. Pallurinn tengist húsi á smekklegan hátt með litlu húsi fyrir unga fólkið. Snyrtimennskan er hér til fyrirmyndar og handbragð allt.
Lindarberg 52
Mjög snyrtilegur og fallegur garður með mikla fjölbreytni í gróðri. Þegar inní garðinn er komið eru skemmtilegar hellulagðar gönguleiðir og öll beð vel snyrt og garðurinn í heild sinni mjög snyrtilegur. Mjög fallegur og gróinn garður í Setberginu. Aðkoma að húsi aðlaðandi og tekur vel á móti gestum.
Suðurgata 9
Hér hefur verið tekið til hendinni, garðurinn er nútímalegur með fallegum dvalarsvæðum með skemmtilegri lýsingu og mjög fallegum plöntum í mismunandi kerjum og pottum. Hugvitsamlega raðað upp og býr dvalarsvæðið til einskonar auka herbergi við húsið. Gróðurinn er fjölbreyttur og greinilega mikill áhugi á garðyrkju hér á ferð.
Skipalón 5 – fjölbýlishús
Mjög skemmtileg og falleg fjölbýlishúsalóð við Skipalón 5 þar sem aðkoma að húsi er mjög snyrtileg og bakgarðurinn var fallegur með vel sleginni grasflöt með fallegum trjá- og runnabeðum ásamt garðmublum fyrir gesti og íbúa lóðarinnar. Lítið en fallegt leiksvæði tengist vel inná dvalarsvæðið. Falleg sumarblóm í öllum beðum. Þessi lóð er til fyrirmyndar.
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…