Snyrtileikinn 2018 – tilnefningar

Fréttir

Hafnarfjarðarbær leitar til íbúa og annarra áhugasamra eftir tilnefningum til viðurkenninga fyrir fallega og vel hirta garða, götur og opin svæði eða stofnanalóðir í Hafnarfirði.

Hafnarfjarðarbær leitar til íbúa og annarra áhugasamra eftir tilnefningum til viðurkenninga fyrir fallega og vel hirta garða, götur og opin svæði eða stofnanalóðir í Hafnarfirði.

Val til viðurkenninga byggir eingöngu á innsendum tillögum og því eru íbúar, starfsmenn og aðrir áhugasamir hvattir til virkrar þátttöku.

Með viðurkenningunum er verið að skapa ákveðna fyrirmynd í þessum efnum, jafnt á íbúðarsvæðum sem atvinnusvæðum.  Með þessu vill Hafnarfjarðarbær vekja áhuga almennings á fegrun umhverfisins innan bæjarins með því að beina athyglinni að þeim sem til fyrirmyndar teljast á vettvangi umhverfismála í Hafnarfirði og ættu þannig að vera öðrum hvatning til framkvæmda. 

Afar mikilvægt er að íbúar sem og fyrirtæki séu hvött áfram og verðlaunuð fyrir góða umgengni og snyrtilegt umhverfi. 

Viðurkenningar verða veittar við hátíðlega athöfn í Gróðrarstöðinni Þöll við Kaldárselsveg í lok ágúst. 

Frestur til að skila inn tilnefningum er til og með 17. ágúst 2018.

Sendið okkur tilnefningu á: berglindg@hafnarfjordur.is 

Ábendingagátt