Snyrtileikinn verðlaunaður

Fréttir

Hafnarfjarðarbær leitaði fyrr í sumar til íbúa og annarra áhugasamra eftir tilnefningum til viðurkenninga fyrir snyrtileika og fegurð eigna, garða og gatna í Hafnarfirði. 

Fjöldi ábendinga frá bæjarbúum og starfsmönnum fyrirtækja
í Hafnarfirði barst þegar óskað var eftir tilnefningum til viðurkenninga fyrir
snyrtileika og fegurð lóða og garða í sveitarfélaginu. Icelandair og Rafal ehf.
fengu viðurkenningu fyrir snyrtilegustu fyrirtækjalóðirnar á athafna- og
iðnaðarsvæðum og Skógræktarfélag Hafnarfjarðar heiðursverðlaun fyrir
brautryðjandastarf í landgræðslu, gróðurvernd og fjölbreyttri trjá- og skógrækt
en verðlaunin eru ætið afhent í Gróðrarstöðinni Þöll sem skógræktin rekur við
Kaldárselsveg.

Hafnarfjarðarbær leitaði fyrr í sumar til íbúa og annarra
áhugasamra eftir tilnefningum til viðurkenninga fyrir snyrtileika og fegurð
eigna, garða og gatna í Hafnarfirði. Viðurkenningarnar voru veittar við
hátíðlega athöfn í húsnæði Skógræktarfélags Hafnarfjarðar í blíðskaparveðri á
miðvikudagskvöld. Eigendur garða við Álfaskeið 85, Brekkuás 15, Erluhraun 15,
Fjóluhvamm 9, Gauksás 37, Hellisgötu 7, Jófríðarstaðaveg 13 og Spóaás 18 fengu
viðurkenningu fyrir fallega og snyrtilega garða með fjölbreytni í gróðri, góða
hirðingu og metnað í garðyrkjustörfum sínum þrátt fyrir rigningarsumar. Þá fékk
Norðurbakki 23 og 25 a-d viðurkenningu fyrir skemmtilega og fallega
fjölbýlishúsalóð við strandstíginn sem gerir gönguferð þeirra sem ganga stíginn
ánægjulega þar sem eigendur hafa gert sína hellulögðu afnotafleti fallega með
allavega mublum, blómakerjum, hitalömpum og allavegana garðskrauti.

Snyrtilegustu lóðirnar við fyrirtæki á athafna- og
iðnaðarsvæðum

Tvö fyrirmyndarfyrirtæki hlutu viðurkenningu fyrir
umhverfisfrágang á nýju athafnasvæði á Völlunum. Icelandair hefur lagt mikinn
metnað í að laga lóð sína við Flugvelli að umhverfinu en allar gönguleiðir eru
hellulagðar og snyrtilegar. Þá blasir fjölbreyttur gróður og falleg
hraunhleðsla við þegar gengið er inn um aðalinngang og þar er aðstaða fyrir
reiðhjól til fyrirmyndar, góð lýsing og flokkunartunnur. Rafal ehf. við
Hringhellu 9 sker sig úr í hverfinu með mjög snyrtilega lóð með góðri aðstöðu
fyrir starfsfólk með bekkjum og borðum, gróðri, hleðslum og hellulögðu stæði
fyrir fatlaða. Lóðin er til fyrirmyndar og öðrum fyrirtækjum á þessum stað
hvatning til að gera slíkt hið sama.

Með viðurkenningunum vill Hafnarfjarðarbær vekja áhuga
almennings á fegrun umhverfis innan bæjarins með því að beina athyglinni að
þeim sem til fyrirmyndar teljast og ættu þannig að vera öðrum hvatning til
framkvæmda.

Img_7618

Á myndunum má sjá verðlaunahafa taka við viðurkenningum
og á einni þeirra eru Helga Ingólfsdóttir, formaður umhverfis- og
framkvæmdaráðs, Steinar Björgvinsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags
Hafnarfjarðar, Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri og Berglind Guðmundsdóttir,
umhverfisfulltrúi.

Img_7628


Ábendingagátt